Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
24.5.2007 | 22:33
Skörin og bekkurinn
Alþingi er kosið af almenningi til þess að fara með vald í umboði almennings. Þannig að þingmennirnir og ráðherrarnir eru fulltrúar almennings. Á hinn bóginn eru til ýmis sérhagsmunahópar sem gæta sérhagsmuna ákveðinna hópa í þjóðfélaginu. Mikið af þessu eru ágætis samtök en það er ekki málið heldur hitt að þetta eru sérhagsmunasamtök, sem gæta hagsmuna einstakra hópa og vinna í þágu þeirra fremur en heildarinnar, það eru þjóðkjörnir þingmenn og ráðherrar sem sitja í umboði þjóðkjörins þings og formlegs umboðs þjóðkjörins forseta sem gæta eiga hagsmuna heildarinnar.
Tvær fréttir sem ég sá í sjónvarpinu í kvöld urðu mér tilefni þess að þylja hér upp þessi almæltu tíðindi.
Fyrst var það viðtal við Sigurstein Másson, formann Öryrkjabandalagsins, í Kastljósi í kvöld. Sigursteinn sagði:
Ég vil taka undir orð Grétars Þorsteinsonar forseta ASÍ að eitt það mikilvægasta sem er að finna í þessum stjórnarsáttmála og það mikilvægasta sem þessi ríkisstjórn getur gert til góðs það er að efla samráð og samvinnu við þau hagsmunasamtök sem lýðræðislega hafa verið valin til þess að gæta hagsmuna fólksins í þessu landi.
Athyglisvert. Það eru einmitt stjórnvöld, sem hafa verið lýðræðislega valin til þess að gæta hagsmuna fólksins í þessu landi í umboði þess. ÖBÍ og ASÍ eru ágæt samtök en þau sækja á stjórnvöld í þágu sérhagsmuna hversu ágætir og réttlátir þeir sérhagsmunir kunna að vera á stundum.
Hin fréttin var viðtal við nýja viðskiptaráðherrann, Björgvin G. Sigurðsson, í fréttum Stöðvar 2. Þar sagði Björgvin:
Ég er búinn að hafa samband við ýmsa þekkta aðila úr viðskiptalífinu sem ég mun hitta á næstu vikum og setja mig mjög vel inn í málin.
Ætlar viðskiptaráðherran að fá ýmsa þekkta aðila úr viðskiptalífinu til að setja sig inn í málin? Varla eru það þeir sem eiga að aðstoða hann við að ná þessum ágætu markmiðum nýja stjórnarsáttmálans:
Mikilvægt er að heilbrigð samkeppni og eðlileg verðmyndun þrífist á öllum sviðum atvinnulífsins og að neytendur njóti góðs af þeirri samkeppni. Efla skal samkeppniseftirlit í því skyni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.5.2007 | 15:22
Bestu vinir aðal
Mér heyrist að flestir reikni með því að Kristrún Heimisdóttir verði aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar í utanríkisráðuneytinu. Rétt eftir að Össur mætti í iðnaðarráðuneytið í dag kom á fund hans þangað Einar Karl Haraldsson og lásu ýmsir í þá heimsókn þannig að hann verði Össuri til aðstoðar þetta kjörtímabil.
Annars er eftirfarandi nöfn oftast nefnd í mín eyru sem væntanlegir aðstoðarmenn í ráðuneytum Samfylkingarinnar: Róbert Marshall, Guðmundur Steingrímsson, Dofri Hermannsson, Helga Vala Helgadóttir, Guðný Hrund Karlsdóttir. Er þetta bara ekki sennilegur hópur, jafnt kynjahlutfall amk, þannig að þetta er hæfilega PC, sýnist mér, en ef sagan með Einar Karl er rétt, gengur eitt nafn af. Svo er spurning með Mörð Árnason, sem nú er á lausu, eftir að hafa fallið af þingi.
Í aðstoðarmannaliði Sjálfstæðisflokksins verða líka breytingar því að Ragnheiður Elín, aðstoðarmaður Geirs, sest á þing og Sturla hættir. Þórlindur Kjartansson er nefndur sem aðstoðarmaður forsætisráðherra en hann er sem kunnugt er þriðja hjólið undir vagni Borgars Þórs og Andra Óttarssonar. Spurning hvern Guðlaugur Þór tekur með sér, nöfn Þóris Kjartanssonar og Björns Ársæls Péturssonar heyrast nefnd í því sambandi.
uppfærsla kl. 1950. Þórir Kjartansson verður ekki aðstoðarmaður Gulla heilbrigðisráðherra.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.5.2007 | 10:42
Samlegð
Ég les það í Mogganum í dag að ekki fáist staðfest það sem haldið var fram í gær að Íbúðalánasjóður eigi að færast frá félagsmálaráðuneytinu undir fjármálaráðuneytið með nýrri ríkisstjórn. Það er ágætt og Samfylkingin hefur samkvæmt því enn á valdi sínu að koma í veg fyrir að Íbúðalánasjóður verði einhvers konar deild í Fjársýslu ríkisins.
Mogginn segir líka að ekki fáist staðfest undarlegasta frétt gærdagsins en samkvæmt henni átti Þróunarsamvinnustofnun að færast frá utanríkisráðuneytinu og undir viðskiptaráðuneytið. Það var vandséð hvaða tilgangi sú breyting hefði getað þjónað, öðrum en þeim að bjarga í Sighvati Björgvinssyni, forstjóra stofnunarinnar, sem lagðist í hernað gegn utanríkisráðuneytinu fyrir nokkrum vikum, eftir að skýrsla kom fram sem lagði til breytingar á skipulagi stofnunarinnar.
Eða hvar eru samlegðaráhrifin af íslenskum neytendamálum, samkeppnismálum og eftirliti á fjármálamarkaði annars vegar og þróunarsamvinnu á Malavi, í Úganda og á Sri Lanka hins vegar? Ætli það sé ekki hagstæðara fyrir þróunarsamvinnuna að halda nánum tengslum við sendiráðin fremur en að heyra undir sama ráðherra og Talsmaður neytenda og Samkeppniseftirlitið.
Þá er látið eins og yfirlýsingin um Þjórsárver sæti einhverjum tíðindum en pólitískt var Norlingaölduveita auðvitað steindauð hugmynd fyrir mörgum mánuðum, líklega frá því um áramót 2006. En Mogginn spyr réttilega vegna hvers Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki fallist á það fyrr en eftir kosningar að þyrma Þjórsárverum? Þegar stórt er spurt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.5.2007 | 10:30
Orð dagsins
hins vegar ekki að finna meiri háttar frávik frá stefnu fráfarandi stjórnar.
23.5.2007 | 11:47
Nýja stóriðjustefnan: Árangur áfram - ekkert stopp!
Gárungarnir hafa sagt undanfarin ár að það skipti engu máli hvern mann kjósi maður sé alltaf að kjósa Framsóknarflokkinn. Mér datt þetta í hug þegar ég horfði á blaðamannafund Ingibjargar Sólrúnar og Geirs Haarde sem stendur yfir í þessum orðum skrifuðum. Þau voru að útskýra stóriðjustefnuna og þegar ég hlustaði heyrði ég ekki betur en að stefnunni mætti lýsa með þessum orðum: Árangur áfram - ekkert stopp. Þannig að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar ætlar sér að framfylgja stefnu Framsóknarflokksins í virkjana- og stóriðjumálum. Gárungarnir virðast hafa eitthvað til síns máls, það þarf ekki að kjósa framsókn til þess að tryggja stefnu framsóknar framgang.
Á mbl.is segir: "Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði að í þessu fælist ekki formlegt stóriðjustopp. Við erum ekki að beita stjórnvaldsaðgerðum til að stöðva orkufyrirtæki," sagði Geir."
![]() |
Stefnt að lækkun skatta á kjörtímabilinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2007 | 10:19
Íbúðalánasjóður á útleið?
Fréttablaðið greinir frá því hvaða breytingar verða á stjórnarráðinu með nýrri ríkisstjórn. Hæst ber flutning húsnæðismála og Íbúðalánasjóðs frá félagsmálaráðuneyti til fjármálaráðuneytis. Líklega vita flestir að á síðasta kjörtímabili var togstreita milli framsóknar og sjálfstæðismanna mest um húsnæðismálin og Íbúðalánasjóð. Deilur voru oft harðar og þá deildu annars vegar félagsmálaráðherra og hins vegar fjármálaráðherra. Fjármálaráðuneytið gekk hart fram og virtist vilja Íbúðalánasjóð feigan. Það að fjármálaráðuneyti fái forræði á málum Íbúðalánasjóðs hlýtur að boða verulegar breytingar á málefnum sjóðsins.
Fleira er athyglisvert, málefni sveitarfélaga fara til samgönguráðuneytis, og almannatryggingum er aukið við verkefni félagsmálaráðuneytis, eins og fram er komið. Hagstofan verður ekki lengur ráðuneyti heldur sjálfstæð stofnun, í hvaða ráðuneyti verður hún vistuð? Ferðamál færast í iðnaðar- og byggðaráðuneytið frá samgönguráðuneyti en sú atvinnugrein vex hröðum skrefum ár frá ári. Það verður spennandi að sjá hvernig Björgvin heldur á viðskiptaráðuneyti, verkefnin þar verða eingöngu verða á sviði neytenda- og samkeppnismála og eftirlit á fjármálamarkaði. Samkeppniseftirlit og fjármálaeftirlit eru óháðar eftirlitsstofnanir og ráðherra er bannað að skipta sér af þeim nema á aðalfundi en kannski er ný löggjöf á döfinni í stjórnarsáttmálanum. Það er verðugt verkefni fyrir að halda áfram baráttu Valgerðar við samstarfsflokkinn um aukið fé til Samkeppniseftirlitsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2007 | 10:02
Óvenjulegur stjórnmálamaður
Tímasetningin kemur kannski á óvart en ekki hitt að Jón kjósi að segja af sér formennsku fyrst hann náði ekki kjöri á þing. Ég taldi að hann mundi bíða miðstjórnarfundar í fyrrihluta júní en hann hefur kosið að hætta strax eftir að fyrirætlanir hans fóru að kvisast út og ekki talið eftir neinu að bíða þegar ný ríkisstjórn hafði verið mynduð. Gott að fá þetta á hreint.
Jón varð formaður með óvenjulegum og umdeilanlegum hætti. Þann skamma tíma sem hann var formaður ávann hann sér traust og væntumþykju flokksmanna. Hann var reyndur stjórnmálastarfi frá fyrri árum og það sást á stundum að hann naut sín ekki í sviðsljósi fjölmiðlanna. Hann sagðist vilja gera skyldu sína þegar hann svaraði kalli forvera síns og enginn getur sagt annað en að hann hafi gefið allt sem hann átti. Í persónulegri viðkynningu er maðurinn afskaplega eftirminnilegur, hlýr, glettinn og ótrúlega skarpur og vel að sér um flesta hluti. Á skömmum tíma innleiddi hann nýja stjórnunarhætti í Framsóknarflokknum og var það tímabær og nauðsynleg aðgerð. Ég hygg að hann hafi verið mesti samráðsstjórnmálamaðurinn á íslensku stjórnmálasviði á sínum formannsferli. Í öllum málum hafði hann hagsmuni þeirrar 12.000 manna hreyfingar sem hann stýrði í huga og var þess ávallt minnugur til hverra hann sótti umboð sitt. Ég hef sjaldan kynnst manni sem er jafn laus við hégómleika og sjálfhverfu. Ég vona að Jóni vegni vel í framtíðinni og veit að það verður fengur að honum hvar sem hann kýs að hasla sér völl.
![]() |
Jón Sigurðsson segir af sér formennsku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.5.2007 | 09:24
Nýr auglýsingamiðill !
23.5.2007 | 09:12
Sannar sögur úr sveitum
Heyrði í gær tvær ágætar sögur úr kosningabaráttunni sem ég ætla að miðla hér áfram.
Fyrst þessi: Maður af höfuðborgarsvæðinu, sem nú er orðinn landsbyggðarþingmaður, kom á bóndabæ þar sem verið var að rýja fé. Hann horfði á atganginn og spurði bóndann: Eru menn hættir að taka gæruna um leið og ullina?
Svo þessi: Einn duglegasti landsbyggðarþingmaðurinn er sagður keyra um 100.000 km á ári. Varla fer svo fram útför í kjördæminu að hann sé ekki á meðal syrgjenda. Nýlega var hann einn þriggja gesta í kirkju þar sem öldruð kona var jarðsungin. Hinir tveir kirkjugestirnir litu á manninn og annar spurði: Hver er þetta? Þetta er útfararstjórinn, sagði hinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.5.2007 | 21:53
Frekar rýr hlutur Samfylkingar
Björgvin G. Sigurðsson er nýr ráðherra og fylgja honum hinar bestu hamingjuóskir frá þessari bloggsíðu í viðskiptaráðuneytið. Áreiðanlega framtíðarmaður. En ríki hans er lítið, og meira að segja óvíst hvar ráðherraskrifstofuna er að finna. Það verður fyrsta verkefni Björgvins að láta búa til handa sér skrifstofu því iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið hefur verið óskipt árum saman og þar er aðeins ein ráðherraskrifstofa. Þangað sest áreiðanlega Össur Skarphéðinsson, ráðherra iðnaðar- og byggðarmála, en á þeim sviðum starfa um það bil 2/3 hlutar af sérfræðingum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins. Össur tekur að auki ferðamál með sér undan samgönguráðuneytinu.
Kannski verða svo flutt verkefni yfir til viðskiptaráðuneytis Björgvins, e.t.v. utanríkisviðskipti frá utanríkisráðuneyti, e.t.v. húsnæðismál frá félagsmálaráðuneytinu, e.t.v. fær hann líka Hagstofuna.
Kristján L. Möller verður samgönguráðherra, það er frekar gamaldags ráðstöfun, þykir mér, að setja fyrirgreiðslupólitíkus af landsbyggðinni í samgönguráðuneytið þegar brýnustu verkefnin bíða hér á höfuðborgarsvæðinu. En Kristján er þungaviktarmaður innan þingflokksins og hann fær sem sagt að verða maðurinn sem vígir Héðinsfjarðargöngin sem tengja heimabyggð hans við Eyjafjarðarsvæðið. Kannski kemur hann svo Vaðlaheiðargöngum á dagskrá innan tíðar.
Jóhanna Sigurðardóttir er heimavön í félagsmálaráðuneytinu, sem nú verður eflt og við það bætt tryggingamálum, þ.e. elli- og örorkulífeyrismálum og málefnum aldraðra, þar á meðal hjúkrunarheimilum, ef ég skil rétt. Jóhanna gjörþekkir þennan málaflokk og þessi endurskipulagning held ég að sé að flestu leyti skynsamleg. En þessi breyting hlýtur að kalla á lagabreytingar og bandorm strax á sumarþingi. Kannski þarf að gera meiri breytingar á stjórnarráðslögunum og er það hið besta mál.
Þórunn Sveinbjarnadóttir er líka vel komin að ráðherrastól, hún hefur setið á þingi síðan 1999 og m.a. setið í umhverfinefnd og sýnt þeim málum mikinn áhuga.
En það er talað um tveggja ára stóriðjuhlé, hvað þýðir það í raun? Tefur það framkvæmdir sem hafist hefðu innan tveggja ára? Ég held að engar framkvæmdir hefðu hafist innan tveggja ára. Talað er um rammaáætlunin sem ljúka á innan tveggja ára? Samkvæmt áætlun Jóns Sigurðssonar átti vinnu við hana að ljúka árið 2010. Þetta þýðir kannski að áætlunargerðinni lýkur ári fyrr en ráðgert hafði verið, þannig að mér sýnist þetta vera hálfgerður spuni.
Ég held það verði ekki horft fram hjá því að í raun er hlutur Samfylkingarinnar talsvert rýrari en Sjálfstæðisflokksins, þrátt fyrir þessa endurskipulagningu einstakra skrifstofa innan ráðuneytanna. Vissulega er endurskipulagning félagsmálaráðuneytisins nokkuð veigamikil en það er engu að síður svo að auk forsætis- og fjármálaráðuneytis hefur Sjálfstæðisflokkurinn langstærstu útgjaldaráðuneytin, - helbrigðis- og menntamálaráðuneytin.
En nýrri ríkisstjórn og öllum ráðherrum beggja flokka fylgja bestu óskir, megi störf þeirra verða landi og þjóð að sem mestu gagni. Á morgun lítur málefnasamningur dagsins ljós og þá verður hægt að ræða hvaða verkefni þessi ríkisstjórn hyggst vinna. Einhverjir voru að tala um að þetta yrði frjálshyggjustjórn, það held ég varla, stjórnin mun væntanlega bera mikið svipmót af miðjupólitík. Bæði eru mestu frjálshyggjumennirnir í vörn í Sjálfstæðisflokknum og eins hefur Samfylkingin sótt mikið inn á miðjuna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Bloggarar
- Björn Ingi
- Freedom Fries
- Denni
- Andrés J
- Jakob
- Helga Sigrún
- Axel
- Arna
- Tómas
- Friðjón
- Davíð Logi
- Eygló Harðar
- Guðmundur
- Sigmar
- Eiríkur Bergmann
- Ómar
- Hallur
- Stefán Fr.
- Ragnar B
- Aðalheiður
- Magnús
- Valdimar
- Bjarni Harðar
- Gísli Freyr
Fleiri bloggarar
- Sveinn Hjörtur
- Bæjarstjórinn
- Egill
- Óli Björn
- Össur
- Helga Vala
- Helgi
- Andrés M
- Sæunn
- Jón Axel
- Fanný
- Snorri
- Stefán Pálsson
- Valgerður
- Hrannar B
- Baddi
Og fleiri
Enn fleiri bloggarar
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.4.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 537180
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar