hux

Báðir flokkar undirbúa fundi í kvöld

Flokksráðum beggja flokkanna sem nú eiga í stjórnarmyndunarviðræðum hefur verið gert viðvart um að þau verði að líkindum boðuð til fundar í kvöld. Það þýðir að allt er að ganga saman hjá Geir og Ingibjörgu. Hléið í gær var annars vegar til þess að Samfylkingarfólk næði að kveðja þá þingmenn sem nú láta af störfum og hins vegar til þess að Geir og Þorgerður Katrín kæmust á tónleikana hjá Bryn Terfel í Háskólabíó í gærkvöldi. Ætli dagurinn í dag fari ekki fyrst og fremst í að undirbúa tillögur til þingflokkanna um skipun ráðherraembætta?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband