hux

Petterson eða Petersson?

Hvernig er það með örvhenta hornamanninn Alexander Petterson. Af hverju er hann allt í einu farið að skrifa nafnið hans eins og hann heiti Petersson? 

Það stendur Petersson á landsliðstreyjunni hans og á heimasíðunni Í blíðu og stríðu sem mér skilst að HSÍ haldi úti og Fréttablaðið segir líka Petersson. En á "subbinu" í sjónvarpinu stendur alltaf Petterson og ég er alveg viss um að fram að þessu hefur nafn þessa öfluga handknattleiksmanns, sem fæddur er í Lettlandi ef ég man rétt, alltaf verið skrifað með þeim hætti.

Hver er skýringin á þessu misræmi, hefur Alexander gert þessa breytingu sjálfur eða er þetta bara kæruleysi og virðingarleysi við nafn leikmannsins.

Ps. Ívar Benediktsson, íþróttafréttamaður Mbl, er búinn að upplýsa hvernig í málinu liggur í athugasemd


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Pétur.

Fljótlega eftir að Alexander hlaut íslenskan ríkisborgararétt hafði eiginkona hans samband við íþróttadeild Morgunblaðsins og óskaði eftir að nafn hans væri ritað Alexander Petersson, með einu té og tveimur essum.  Athugasemd hennar var tilkominn vegna þess að nafn Alexanders hafði verið ritað á margvíslegan hátt og þá yfirleitt rangt. Hann mun hafa gert þessa breytingu á nafni sínu þegar ríkisborgararétturinn var veittur. Fyrra nafn hans var Alexanders Petersons, ef mig minnir rétt.

kveðja Ívar Benediktsson.

Ívar Benediktsson (IP-tala skráð) 24.1.2007 kl. 12:40

2 Smámynd: Pétur Gunnarsson

Takk fyrir þetta Ívar.

Pétur Gunnarsson, 24.1.2007 kl. 13:05

3 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Maðurinn ber nafnið Alexander og er skráður Petersson í Þjjóðskránni. Þar fyrir utan er hann frábær í handboltanum ...

Herbert Guðmundsson, 25.1.2007 kl. 06:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband