hux

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Enga pólitíska seðlabankastjóra

Flokksþing Framsóknarflokksins er í þann veginn að fara að afgreiða ályktanir sínar og er verið að dreifa þeim eftir meðferð í nefndum. Einn moli í ályktun um efnahagsmál vakti athygli mína. Hann er svona:

 

·         Afnema pólitískar ráðningar seðlabankastjóra.

Minni á að þegar Jón Sigurðsson lét af starfi Seðlabankastjóra hafnaði framsókn því að skipa eftirmann hans. 

 


"Understatement" ársins - er 365 komið niður í 265?

Ari Edwald segir að sjö milljarða tap á 365 sé óásættanleg niðurstaða. Þar af var tapið á fjórða ársfjórðungi einum 2,2, milljarðar. Þetta hlýtur að vera "understatement" ársins. Eins og góður maður benti mér á er tapið svo mikið og það hefur flísast svo úr rekstrinum á þessu ári að 365 hlýtur að vera komið niður í að minnsta kosti 265. Og var það ekki einmitt á síðasta ársfjórðungi 2006 sem Ari og aðrir helstu stjórnendur fengu kaupréttarsamninga á vildarkjörum upp á tugi milljóna. Eru kaupréttarsamningar ekki yfirleitt tengdir árangri í rekstri? Er það ekki einhvern veginn réttlætingin fyrir því fyrirbæri?
mbl.is Tap 365 tæpir sjö milljarðar á síðasta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siv hótar stjórnarslitum

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, sagði ríkisstjórnarsamstarfið hugsanlega í hættu fáist sjálfstæðismenn ekki til að efna ákvæði stjórnarsáttmálans og setja ákvæði í stjórnarskrá um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar. Fáeinir dagar eru eftir af starfstíma Alþingis áður en því verður slitið þann 15. mars vegna kosninga.

Eins og ég sagði hér að neðan er gríðarlegur hiti á flokksþinginu vegna brota sjálfstæðismanna undir forystu Þorsteins Pálssonar á ákvæði stjórnarsáttmálans um þetta efni. Yfirlýsing Sivjar mælist vel fyrir meðal þingfulltrúa sem gerðu góðan róm að máli hennar. Vísir hefur þegar flutt fréttir af þessu en ekki aðrir miðlar, enn sem komið er. Vísir lýsir ummælum Sivjar með þessum orðum:

Siv sagði að ef ekki næðist niðurstaða í málinu væri hugsanlegt að mikil gjá myndaðist milli flokkana þannig að samstarfið lifði það ekki af. Samstarfið heyrði því sögunni til og þá yrði annaðhvort minnihlutastjórn eða einhvers konar starfsstjórn í landinu til kosninga.


Átök og auðlindir

Ég heyrði það á máli manna á göngunum á flokksþingi framsóknar, sem ég kíkti á í morgun, að það er gríðarleg ólga í flokknum vegna þess að sjálfstæðismenn eru að svíkjast um að efna ákvæði stjórnarsáttmálans um að setja ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar í stjórnarskrá.

Það stendur þarna upp úr öðrum hverjum manni óánægja með þetta enda liggur fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn einn stöðvar framgang málsins í stjórnarskrárnefnd. Það er fullyrt að Þorsteinn Pálsson ritstjóri Fréttablaðsins, sem situr fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins í stjórnarskrárnefnd, hafi með andstöðu sinni komið í veg fyrir að nefndin legði fram þverpólitískt frumvarp um málið fyrir þingslit í vor. Það er skondin sérstaða þessa auðlindamáls að í því eru ritstjórar tveggja dagblaða miklir gerendur, Styrmir sat í auðlindanefndinni á sínum tíma og vildi þar stjórnarskrárákvæði. Nú kemur Þorsteinn í veg fyrir að sú niðurstaða nái fram að ganga nokkrum árum síðar.

Mér heyrist að það séu allar líkur á að þetta mál muni setja svip sinn á flokksþingið um helgina. Miðað við það hvernig ég les stöðuna yrði ég hissa ef ekki kæmi harðorð ályktun um þetta efni og jafnvel  krafa um að flokkurinn taki höndum saman við stjórnarandstöðuna um að ná málinu í gegn standi  Sjálfstæðisflokkurinn í vegi fyrir því. 


Týnd eða falin?

Lýst er eftir niðurstöðum skoðanakönnunar sem Capacent/Gallup var að gera meðfram spurningavagni sínum í vikunni 19.-23. febrúar. Spurt var: Mundir þú kjósa umhverfisverndarframboð leitt af Margréti Sverrisdóttur, Ómari Ragnarssyni og Jóni Baldvin Hannibalssyni?

Nú er búið að skila þjóðarpúlsinum og augljóslega líka skýrslunni um þessa spurningu. En ég finn hvergi niðurstöðurnar, þær eru ekki í blöðunum í dag, ekki í útvarpinu og ekki á bloggi Margrétar og Ómars.

Væntanlega hefur skýrslan týnst einhvers staðar: skilvís finnandi komi henni til skila. Eða getur verið að Margrét og félagar hafi einfaldlega orðið fyrir vonbrigðum og ákveðið að flagga ekki niðurstöðunni? 


Kálið og ausan

Ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið hjá Vinstri grænum. Eru þeir ekki í svipaðri stöðu og Borgaraflokkurinn og Þjóðvaki voru tveimur mánuðum fyrir skoðanakannanir á sínum tíma? Ég man ekki betur. Það var nú ekki mjúk lendingin hjá þeim flokkum, sem "fóru með himinskautum" og ég spái því að það gangi illa að opna Vinstri grænu fallhlífina næstu vikur. Óskhyggja? Kemur í ljós en ég mun éta hattinn hennar Salóme Þorkelsdóttur ef VG fær 24% 12. maí. Úthringingum var lokið þegar landsfundurinn hófst með netlöggunni og því öllu. Það verður athyglisvert að sjá Gallup könnunina í næstu viku

En núna- þegar Gallup/Capacent er búið að reikna út þjóðarpúlsinn - eru Margrét Sverrisdóttir, Jón Baldvin, Ómar Ragnarsson og félagar búin að fá niðurstöðurnar úr könnuninni þar sem spurt var hvort fólk vildi kjósa umhverfisverndarframboð með þau í forsvari. Hvenær ætla þau að birta þær niðurstöður? 

Það er sterk vísbending um erfiða tíma hjá Mogganum að blaðið hafi nú hætt áratugalöngu samstarfi sínu við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um skoðanakannanir og sé þess í stað orðið aftursætisfarþegi hjá RÚV um nýtingu á upplýsingum úr könnunum Gallup/Capacent. Það kom fram í útvarpinu að fram að kosningum muni Capacent gera vikulegar skoðanakannanir fyrir RÚV, sem fær að skúbba, og Moggann, sem fær að borga hluta af reikningnum og birta gröf  og jórtra bakgrunnsbreytur og aukaspurningar daginn eftir. Staðfest samvist hjá Græna postulínsfálkanum og Bláskjá ohf.

ps. kl. 22. segi að ofan að hringingum hafi lokið fyrir landsfund en venjulega er gallup að klára úrtakið ca. 26 hvers mánaðar. Í frétt RÚV segir að könnunin hafi verið gerð allan febrúar. Kemur í ljós í Mbl í fyrramálið hvaða dagsetningar afmarka hana.


mbl.is VG með meira fylgi en Samfylking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattfrjáls framfærsla - norrænn einstaklingsafsláttur

Ég er búinn að lesa yfir pakkann með drögum að ályktunum sem lagður verður fyrir flokksþing framsóknarmanna í fyrramálið og er býsna ánægður með margt. Til dæmis um skatta einstaklinga, þar er lagt til að tekjur til lágmarksframfærslu séu ekki skattlagðar og tekinn upp einstaklingsbundinn persónuafsláttur að norrænni fyrirmynd. Hugmyndir um leiðir í skattamálum eru þessar: 

Einfalda skattkerfið og auka eftirlit með undanskotum. Skilgreina lágmarksframfærslu miðað við aðstöðu hvers einstaklings og miða frítekjumark við að ekki sé greiddur skattur af þeirri fjárhæð.  Kannaðir verði kostir þess að taka upp einstaklingsmiðaðan persónuafslátt og fella inn í hann bætur vegna húsnæðis, barna, örorku og annarra aðstæðna. Jafnframt verði kannaðir kostir þess að færa tekjujöfnun skattkerfisins meira inn í tekjuskattkerfið.  Draga úr jaðarsköttum. Afnema skal stimpilgjöld.

Fyrstu skref verði að afnema stimpilgjöld nú þegar og vinna vandaðan framfærslugrunn sem notaður verði til grundvallar þegar frítekjumark verður ákveðið. Ég bendi mönnum og konum á að lesa nú og bera saman vinnubrögðin við ályktanagerð hjá okkur frömmurum annars vegar og VG hins vegar.


Svavar sagði upp

Svo að það valdi ekki misskilningi er ljúft og skylt að taka fram að Svavar Halldórsson sagði upp á Stöð 2, afhenti Sigmundi Erni fréttastjóra uppsagnarbréf í gær. Svavar sá um þáttinn Pólitík sem hóf göngu sína í vetur en var kippt allsnarlega úr loftinu eftir skamman tíma með litlum fyrirvara. Svavar ætlar að leita á önnur mið og á nú í viðræðum við mann og annan. Kona hans, Þóra Arnórsdóttir, heldur áfram að mæta til vinnu í Skaftahlíðinni þar sem hún er einn umsjónarmanna Íslands í dag.

Rósa Björk og Svavar hætta á Stöð2 - Kristján Már varafréttastjóri

Það er umrót á fjölmiðlunum. Í morgun var starfsmönnum fréttastofu Stöðvar 2 tilkynnt um starfslok fréttamannanna Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur og Svavars Halldórssonar. Ennfremur ráðningu Kristján Más Unnarssonar, nestors fréttastofunnar, í starf varafréttastjóra. Þórir Guðmundsson, hefur haft þann titil undanfarið en snýr sér alfarið að því að endurbæta V'isi.is og mun ekki af veita.

Það þynnist enn bekkurinn hjá Stöð 2, stutt er síðan Þór Jónsson, stólpi í innra starfi þar, hætti og Hjördís Rut Sigurjónsdóttir hætti um síðastliðin mánaðamót og fór að vinna hjá pabba sínum, ritstjóra  DV.


Einn maður - eitt atkvæði

Einn maður - eitt atkvæði. Áhugamenn um stjórnmálasögu hljóta að vera sammála mér um að það eru söguleg tíðindi að slík tillaga sé gerð í ályktunardrögum sem lögð verða fyrir flokksþing Framsóknaflokksins sem hefst á morgun. Lögð er til nákvæm útfærsla á kosningakerfi sem mér skilst að eigi fyrirmynd í Þýskalandi.

Í þessum ályktunardrögum segir að markmiðið sé að  tryggja við kosningar til Alþingis persónukjör og vægi kjósenda við röðun á lista til að skapa meiri nálægð milli kjörinna fulltrúa og kjósenda. Leiðirnar að markmiðinu séu þær ða hluti þingmanna verði kjörinn af landslista og hluti í kjördæmum. Kjósendur raði fulltrúum á landslista og kjósi síðan flokk íþví kjördæmi þar sem þeir hafa búsetu. landslisti verði notaður til að velja uppbótarþíngmenn til að tryggja að samræmi sé milli kjörfylgis og fulltrúa á þingi.

Sami einstaklingur getur setið á kjördæmalista og landslista og kemur þannig til álykta sem  uppbótarmaður nái hann ekki kjöri í viðkomandi

Orðrétt segir:

Kjördæmum verður fjölgað í til að mynda 11 kjördæmi þar sem 3 eru í kjöri í hverju kjördæmi. Kjördæmamörk breytist í samræmi við breytingar á búsetu og tryggt verði að 1 maður þýðir 1 atkvæði. Sett verði krafa um lágmarksfylgi á landsvísu til að flokkur, sem ekki kemur að kjördæmakjörnum þingmanni, komi til álykta við úthlutun uppbótarþingsæta.  [...] Framsóknarflokkurinn beiti sér fyrir því við stjórnarmyndun að nýr meirihluti á Alþingi setji af stað vinnu við að breyta kosningalögunum sem hafi þessi markmið ð leiðarljósi.

Þeir sem ekki átta sig á því að þessi tillaga sæti tíðindum á flokksþingi Framsóknarflokksins ættu að ná í gömlu sögubókina og fletta upp á þingrofsmálinu, hræðslubandalaginu og umræðum sem eru nær í tíma um vægi atkvæða í landinu. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband