Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
27.3.2007 | 10:15
Þreifingar
Þreifingar milli stjórnmálaforingja um stjórnarmyndanir í aðdraganda kosninga eru alþekktar. Ég rifjaði upp í gær að það er komið fram að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hittust á einkafundum um páskana 1995 og lögðu grunninn að því stjórnarsamstarfi sem stendur enn.
Og er það ekki rétt munað að í 3ja bindi ævisögu Steingríms Hermannssonar, sem Dagur B. Eggertsson skráði, séu áhugaverðar upplýsingar um fundi Ólafur Ragnar Grímssonar, þá formanns Alþýðubandalagsins, með Steingrími Hermannssyni, þá formanni Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra? Þetta var árið 1988, í aðdraganda þess að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar sprakk, að því er menn töldu í beinni útsendingu í sjónvarpi. Þá var Sjálfstæðisflokknum varpað á dyr í stjórnarráðinu og Alþýðubandalagið tekið inn í staðinn. En Steingrímur og Jón Baldvin höfðu sem sagt fengið meldingar frá Álþýðubandalaginu áður en stjórnin sprakk. Það gerðist á fundi Steingríms og Ólafs Ragnars, sem Ólafur óskaði eftir undir öðru yfirskini, í nafni þingmannasamtakanna Parlamentarians for Global Action.
Ég man ekki alveg hvað er fram komið um aðdragandann að myndun ríkisstjórnar 1991, það fer að koma, rétt að gera því skil síðar.
ps. uppröðun málsgreina í þessari færslu var breytt kl. 14.55.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.3.2007 | 10:11
Fréttaskot úr fortíð: Lærisveinn töframannsins
Ég fer upp í sveit, Lok, lok og læs, Þrjú hjól undir bílnum og Jói Útherji voru lög sem gerðu Ómar Ragnarsson heimsfrægan á Íslandi á árunum upp úr 1960, hann var eiginlega bæði Íþróttaálfurinn og Birgitta Haukdal á sínum tíma. Ómar var aðalskemmtikrafturinn á 17. júníhátíðinni í Kópavogi árið 1967 og á þeim tíma var ekki hægt að gera betur við börnin í Kópavogi en að bjóða upp á Ómar.
En það var fleira sér til gamans gert þennan þjóðhátíðardag í Kópavogi eins og sést þegar gamlir Moggar eru skoðaðir á Landsbókasafninu. (smellið á myndina) Meðal þeirra sem fram komu var Töframaðurinn Tarento ásamt aðstoðarmanni sínum. Tarento var listamannsnafn Ketils Larsens, sem síðar varð þekktari fyrir að leika jólasvein, en í hlutverki aðstoðarmannsins var ungur piltur að nafni Davíð Oddsson. Davíð hélt á hattinum meðan Ketill dró upp kanínurnar, eða þannig.
Ekki veit ég hvort Davíð og Ómar voru oft saman á sviðiá þessum árum, líklega ekki. Ómar hélt áfram að skemmta en Davíð stóð ekki lengi við í bransanum heldur fór í pólitík. Þar náði hann árangri sem seint verður leikinn eftir og var forsætisráðherra lengur en nokkur annar í sögu landsins. Hvort eitthvað af því sem hann nam við fótskör töframannsins Tarento nýttist Davíð í pólitíkinni skal ósagt látið. En nú er Ómar að hasla sér völl á því sviði þar sem Davíð var áður stjarna - og líkt og Davíð 17. júní 1967 er Ómar í hlutverki byrjandans nú. Kannski væri nú ráð fyrir Ómar að heyra aðeins í Katli Larsen, hann er flesta daga á ferð hér í miðbænum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2007 | 19:35
Af gefnu tilefni
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
26.3.2007 | 10:55
Fengitími og forsagan
Það er ekki nýtt að stjórnmálaforingjar vinni að ríkisstjórnarmyndun fyrir kosningar. Drög að stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks voru lögð á einkafundi Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar á Þingvöllum um páskana 1995. Hið sama gæti verið uppi á tengingnum nú milli VG og xD.
Fréttin sem hér var sögð um einkafund Geirs H. Haarde og Steingríms J. Sigfússonar hefur greinilega valdið titringi í herbúðum VG. Á skömmum tíma hrúgast hér inn komment frá spunadeild VG. Það er skiljanlegt að VG sé ekki ánægt með að þessi fundur hafi spurst út en þannig er það nú samt.
Það er á margra vitorði að Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi, reyndi í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna að semja við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson um samstarf VG og Sjálfstæðisflokks. Árni bað Vilhjálm að hafa þolinmæði meðan VG setti á fót leikrit að loknum kosningum til að róa vinstriarm flokksins. VG treysti sér ekki í viðræður við Sjálfstæðisflokkinn nema vera áður búið að tala við samstarfsmenn sína í R-listanum, vissi sem var að annað mundi leggjast illa í baklandið. Hugurinn stóð þó til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Vilhjálmur var ekki tilbúinn að taka þátt í spunaleikritinu með Árna Þór og því varð ekki úr samstarfi. Nú er Árni Þór búinn að kommentera á eldri færsluna og reyna að spinna sig út úr sögunni um fund Steingríms og Geirs. Hann vill ekki að baklandið viti af þessum þreifingum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.3.2007 | 10:40
Djúpborun
Íslandshreyfingin kynnti merki sitt á blaðamannafundi á dögunum. Glöggur maður benti mér á að ekki hefði hreyfingin nú borað djúpt eftir merkinu. Það er nánast eins og merki Djúpborunarfélagsins, sem vinnur að því þjóðþrifamáli að nýta betur orku háhitasvæðanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.3.2007 | 19:50
Einkafundur Steingríms J. og Geirs H. Haarde í síðustu viku
Steingrímur J. Sigfússon og Geir H. Haarde hittust á einkafundi í vikunni sem leið. Þetta hef ég eftir heimildum sem ég treysti algjörlega.
Heimildarmaður minn telur að Steingrímur hafi óskað eftir fundinum. Vitaskuld veit ég ekki hvað þeir ræddu sín á milli en það fyrsta sem kemur í hugann er að Steingrímur hafi verið að plægja jarðveginn fyrir stjórnarsamstarf að kosningum loknum.
Kannski eru Vinstri grænir að fara á taugum, hafa áhyggjur af því að í kosningabaráttunni bíði þeirra ekkert annað en að tapa niður þeirri stöðu sem skoðanakannanir sýna að flokkurinn hafi haft? Því vilji Steingrímur undirbúa jarðveginn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
25.3.2007 | 12:48
Þannig er það
25.3.2007 | 12:36
Endurvinnsla
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2007 | 14:33
Þá var öldin önnur er Steingrímur studdi álver við Húsavík
Þá lýsti Steingrímur J. Sigfússon yfir eindregnum stuðningi við það að nýta jarðhitasvæðin í nágrenninu fyrir orkufrekan iðnað á Húsavík og nafngreindi hann sérstakalega Þeistareyki og jarðhitasvæðin í Mývatnssveit.
Fann þetta hjá Tómasi sem fann það hér. Gefur mér tilefni til að rifja enn upp þetta hér.
ps. 25.03,kl. 16:48: Allar eldri athugasemdir við þessa færslu hafa verið teknar út.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.3.2007 kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.3.2007 | 12:57
Nú og þá
Þorsteinn Pálsson var ekki svona andvígur einkaframkvæmdum þegar hann sat í ríkisstjórn og tók þátt í því að ákveða að Hvalfjarðargöng skyldu gerð í einkaframkvæmd ekki með beinu ríkisframlagi. Meira að segja Steingrímur J. greiddi atkvæði með Hvalfjarðargöngum í einkaframkvæmd en það eru hann og Þorsteinn Pálsson sem telja úr mönnum að ráðast í Sundabraut með sama hætti nú. Dagur B. talaði í útvarpinu í gær um þetta sem gamla hugmynd en man ég ekki rétt að í kosningabaráttunni í fyrravor hafi sami maður talað um einbreiða brú, eða amk brú með einni akrein í hvora átt? Það var gömul hugmynd !! Faxaflóahafnir hafa áður boðið þátttöku í fjármögnun, gerðu það í fyrravetur, en fyrirtækið hefur ekki áður lýst áhuga á að annast framkvæmdina með sama hætti og Spölur gerði þegar Hvalfjarðargöng voru gerð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Tenglar
Bloggarar
- Björn Ingi
- Freedom Fries
- Denni
- Andrés J
- Jakob
- Helga Sigrún
- Axel
- Arna
- Tómas
- Friðjón
- Davíð Logi
- Eygló Harðar
- Guðmundur
- Sigmar
- Eiríkur Bergmann
- Ómar
- Hallur
- Stefán Fr.
- Ragnar B
- Aðalheiður
- Magnús
- Valdimar
- Bjarni Harðar
- Gísli Freyr
Fleiri bloggarar
- Sveinn Hjörtur
- Bæjarstjórinn
- Egill
- Óli Björn
- Össur
- Helga Vala
- Helgi
- Andrés M
- Sæunn
- Jón Axel
- Fanný
- Snorri
- Stefán Pálsson
- Valgerður
- Hrannar B
- Baddi
Og fleiri
Enn fleiri bloggarar
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 537242
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar