hux

Fagra Ísland

Þennan sunnudagsmorgun lítur miðborg Reykjavíkur út eins og óeirðir hafi átt sér stað í Bankastræti sl. nótt. Að vísu sé ég ekki betur en rúður séu allar heilar en samt er gangstéttin þakin glerbrotum. Líklega voru þau glerbrot einu sinni bjórglös og vínglös, ætli þetta séu áhrif reykingabannsins? Gestir veitingahúsanna tolla síður innandyra og þar eru engin borð til að leggja frá sér glösin, þá eru þau bara látin falla, eða sett til hliðar og svo stígur einhver ofan á þau. 

Það voru fáir á ferli hér í morgun helst túristar, rónar, einstaka ungir foreldrar með barnavagn og svo við nokkrir félagarnir.  Túristarnir eru ekki að anda að sér hreina loftinu eða horfa á Esjuna, þeir fara  varlega, horfa forviða á ummerki næturinnar og reyna að varast að stíga á glerbrot. Maður sér á þeim að þeir eru að velta því fyrir sér hvað hafi hér verið á seyði? Þeir komu hingað til að eyða fríinu í hreinasta og óspilltasta landi í heimi !!

Guði sé lof fyrir Hreinsunardeild Reykjavíkur, sagði félagi minn þegar við virtum þetta fyrir okkur. Hvernig væri þessi borg ef ekki væri fólk í vinnu við að tína upp skítinn eftir borgarbúa?

Hér er mynd tekin með farsíma í Bankastræti kl. 9.45 í morgun.

IMG00390


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Ég bý í þessum "fallega" miðbæ og þetta er óþolandi, eins er veggjakrotið þar ófögur sjón.

Eva Þorsteinsdóttir, 10.6.2007 kl. 18:16

2 Smámynd: Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

Bagdad á vondum degi Helga Vala?  Sérðu sundursprengd lík, útlimi á víð og dreif, blóð, grátandi fólk, blóðuga sjúkraliða, brennandi hús, sprengda bíla?   Ha? 

Björgvin Valur - Bæjarslúðrið, 10.6.2007 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband