hux

Takk fyrir komuna

Kristinn H. Gunnarsson hættur í Framsókn og kveður þingflokkinn eftir átta ára vist. Ekkert breytist nema hann hættir að mæta á tvo þingflokksfundi í viku og færir sig væntanlega úr skrifstofuhúsnæðinu í Austurstræti og yfir til frjálslyndra þær vikur sem eftir eru af þinghaldinu. Það er ekki hægt að segja þetta hafi áhrif á þingmeirihluta ríkisstjórnarinnar í raun og örugglega ekki heldur á fylgi framsóknar, þetta hefur legið lengi fyrir og ekki haft sjáanleg áhrif á fylgi flokksins í könnunum, hvorki á landsvísu né í NV-kjördæmi, það er löngu orðinn fullur skaði í málinu.

En yfirlýsing Kristins er merkileg, t.d. þetta: 

Frjálslyndi flokkurinn er að mörgu leyti með svipaðar áherslur og er að finna í stefnuskrá Framsóknarflokksins og hefur markað sér stað sem frjálslyndur og umbótasinnaður flokkur milli þeirra flokka sem eru til hægri og vinstri í íslenskum stjórnmálum.

Afsakið meðan ég dæli hér inn brosköllum eins og unglingsstúlkaLoLLoLLoLLoLSmileLoLLoLSmileLoLLoL en auðvitað þarf Kristinn að reyna að selja sjálfum sér og öðrum að þetta snúist um eitthvað annað en hans eigin atvinnumál næstu fjögur árin. Þessi yfirlýsing sýnir fyrst og fremst prinsipleysi Kristins, sem kemur gömlum samstarfsmönnum hans ekki óvart, en auðvitað hefur hann markaðssett sig sem prinsipmanninn mikla í íslenskri pólitík. Samt er mér að sumu leyti eftirsjá að Kristni úr flokknum, hann er skarpgreindur maður, kann á mörgu skil, flestum slyngari og það er gaman að ræða við hann um pólitík á góðri stund. Líklega var ég sammála honum um málefni oftar en ekki en aðferðir hans við að vinna málefnum framgang eru ekki til útflutnings, að mínu mati, og hafa ekki skilað árangri. Vegni honum vel en megi frjálslyndir uppskera eins og þeir hafa til sáð. Mótsagnir, mótsagnir, já þannig er það.


mbl.is Kristinn segir sig úr Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló Þóra Harðardóttir

Svona einn í viðbót  

Eygló Þóra Harðardóttir, 8.2.2007 kl. 16:47

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég býð Kristinn velkomin í hópinn.  Kristinn hefur alltaf verið fylginn sér og menn vita fyrir hvað hann stendur.  Það er löngu orðið ljóst að hann á ekki samleið með Framsóknarflokknum.  Ef til vill á hann meira sameiginlegt með Frjálslyndum.  Allavega hef ég trú á því að hann muni vilja vinna með flokknum í því að brjóta upp þetta arfavitlaust kvótakerfi sem við búum við í dag.  En við skulum spyrja að leikslokum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.2.2007 kl. 19:25

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Má ég líka.  Hvenær kemur Eygló?

p/s Pétur, þú mátt koma líka.

Georg Eiður Arnarson, 9.2.2007 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband