14.4.2007 | 20:25
Er þetta stefnan í málefnum Palestínu?
Ég fæ ekki almennilega botn í þetta ákvæði í ályktunum sjálfstæðismanna um að hafna "hvers kyns stuðningi við ríkisstjórnir sem hryðjuverkahópar eiga aðild að, eða sem fjármagna hryðjuverkasamtök" nema ég líti svo á að þetta sé það sem flokkurinn vill segja um málefni Palestínu. Hvar annars staðar í heiminum getur þetta átt við?
Að sjálfstæðismenn séu þarna að taka undir með Bandaríkjastjórn. Það sé útilokað að styðja sjálfstætt ríki Palestínumanna af því að allir skipulagðir pólitískir hópar í því landi sem njóta einhvers almenns stuðnings eru samkvæmt skilgreiningu Bush-stjórnarinnar hryðjuverkasamtök. Eða hvað?
Á síðasta þingi var samþykkt þingsályktunartillaga Jóns Kristjánssonar um að Íslendingar kosti sjúkrastöð í Palestínu. Ætli það framlag geti fallið undir "hvers kyns stuðning, að mati sjálfstæðismanna? Spyr sá sem ekki veit. Og hvaða þýðingu hefur þetta yfirleitt í íslenskum stjórnmálum nema sem yfirlýsing um takmörkun á þeirri mannúðaraðstoð sem flokkurinn vill að íslensk stjórnvöld veiti á alþjóðavettvangi?
Tekist á um orðalag í utanríkismálaályktun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (48)
14.4.2007 | 19:33
Styrkir og stoðir
Samfylkingin birti reikninga sína fyrir síðasta ár í dag og er allt gott um það að segja, en frá og með áramótum tók gildi ný og ströng löggjöf um fjármál flokkanna. Það vakti athygli mína að síðasta ár hefur greinilega verið afar gott í rekstrinum og var ég svo sem farinn að átta mig á því við að fylgjast með þeim krafti sem einkennir kosningabaráttu flokksins, Samfylkingin hefur auglýst meira en allir aðrir flokkar til samans það sem af er baráttunni.
Í reikningunum kemur fram að tekjur flokksins jukust um 37% frá árinu 2005 og námu alls 125,1 milljón króna. Á síðasta ári voru tekjurnar 91,3 milljónir. Ég fann svo á vef flokksins eldri ársreikninga og sá þá að nú hefur framsetningu reikninganna verið breytt. Nú eru tekjurnar settar fram í einu lagi en eldri útgáfa með yfirliti áranna 2001-2005 hafði sundurgreint tekjurnar og greint á milli tekna frá ríkinu, tekna frá þingflokki og frjálsra framlaga og styrkja. Síðastnefndi liðurinn, frjáls framlög og styrkir námu 9,1 milljón á árinu 2005, að því er fram kemur hér. Upphæð frjálsra framlaga og styrkja á árinu 2006 kemur ekki fram í því sem kynnt var í dag, og af því að ég gef mér að það hefði ekki farið fram hjá mér ef tekjur frá ríkinu og tekjur frá þingflokki hefðu aukist vegna lagasetningar á síðasta ári, ætla ég að leyfa mér að ganga út frá því að þessi 37% aukning á heildartekjunum hljóti að eiga rætur að rekja til aukningar á liðnum frjáls framlög og styrkir.
Nú kann tvennt að skýra þetta, annars vegar það að Samfylkingin hafi eflt styrktarmannakerfi sitt stórlega á síðasta ári og að nú greiði þúsundir flokksmanna reglulegt framlag til flokksins. Hin skýringin, sem mér sýnist hugsanleg, er sú að flokkurinn hafi gert mikið átak í því að safna inn styrkjum frá fyrirtækjum á síðasta ári til þess að safna sem mestu í sjóð fyrir áramót, en þá tóku einmitt gildi lög sem banna hærri styrki en 300.000 krónur frá einstökum aðilum. Kannski er þetta samansafn af hvoru tveggja, en ef maður gefur sér að eingöngu sé um aukningu á styrkjum að ræða hafa þeir aukist um 33,8 milljónir króna á síðasta ári, eða úr 9,1 milljón í 42,9. Ætli þróunin hafi líka verið svona hjá öðrum flokkum í lok síðasta árs?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.4.2007 | 11:55
JBH tekur undir kjarnann í málflutningi Ómars
Dæmi um hið pólitíska fréttamat á Mogganum kemur vel fram á forsíðu blaðsins í dag, þykir mér. Þar er neðst á forsíðunni rammi með tilvísun í grein Jóns Baldvins, sem þekur heila opnu og tvo dálka að auki í Lesbókinni. Þetta er einn af "bókardómum" JBH og nú er það bók Steingríms J frá því fyrir jól sem verður JBH að tilefni til þess að setja á langa ræðu, sem segir lítið um bókina, en mikið um hugmyndir JBH. Er það vitaskuld hin athyglisverðasta lesning og get ég tekið undir allt sem þar kemur fram um ESB og Bandaríkin og hvet menn til að glugga í þetta.
En Mogginn velur að taka út úr þessu á forsíðu kafla þar sem Jón Baldvin ræðir um möguleikann á því að upp úr kjörkössunum komi svipuð staða og árið 1978 og er VG þá í hlutverki Alþýðuflokksins eftir stóran sigur sem fleytir fullt af órólegum nýliðum inn á þing. Hér velur Mogginn að nota það sem nýtist Sjálfstæðisflokknum til að halda á lofti glundroðakenningunni um eilífa sundurþykkju á vinstri vængnum. Hins vegar er sleppt raunverulegri frétt inn í stöðuna í dag. Hún er sú að þótt JBH hafi mætt á landsfund Samfylkingarinnar í gær er hann ennþá mjög hallur undir Íslandshreyfingu Ómars. Það birtist strax í næstu setningu við það sem Moggin dregur út þegar JBH segir:
Og Íslandshreyfing Ómars og Margrétar. Getur hún fengið nægilega mörg atkvæði frá stjórnarflokkunum báðum, frá þeim kjósendum, sem vilja mótmæla stóriðjustefnu stjórnvalda og vanrækslu velferðarþjónustunnar, til þess að Íslandshreyfingin geti ráðið úrslitum um myndun ríkisstjórnar vorið 2007? Eins og Hannibal gerði með Samtökum frjálslyndra og vinstrimanna 1971. Burt séð frá föstum liðum eins og venjulega í íslenskri pólitík virðist þetta vera lykilspurningin um stjórnarmyndunarkosti að loknum kosningunum 2007.
Þarna tekur JBH beinlínis undir kjarnann í málflutningi Ómars Ragnarssonar og staðfestir að það er ekki af tilefnislausu rætt um tengsl hans við Íslandshreyfinguna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2007 | 11:53
Risinn upp við dogg
14.4.2007 | 00:05
Fréttayfirlit
Kíkið á Kastljósið þar sem Kristrún Heimisdóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir mættust. Ragnheiði Elínu er greinilega ekki fysjað saman, situr pollróleg undir þessu.
Ég held að orðið "Samfylkingin" hafi komið tæplega fjörutíu sinnum fyrir í ræðu Ingibjargar Sólrúnar við setningu landsfundarins í dag. Hún talaði líka um að hún væri að heyja hina "góðu baráttu"...
Diddú söng við setningu landsfundar Samfylkingarinnar - og líka við setningu landsfundar Sjálfstæðisflokksins í gær.
Ingibjörg Sólrún nefndi sérstaklega í ræðunni - þótt það komi ekki fram í textanum - að Jón Baldvin væri viðstaddur landsfundinn, það gerir Össur líka í nýjum pistli. Þau leggja áherslu á að eyða orðrómi um tengsl JBH við Íslandshreyfinguna. Hún þakkaði líka Jóni Sigurðssyni, Margréti Frímannsdóttur og Öddu Báru Sigfúsdóttur fyrir komuna.
Það var slúðrað um það í dag að norrænu jafnaðarmannaflokksformennirnir, sem færðu Samfylkingunni traust frá Norðurlöndum, yrðu fluttir í Egilshöll í þyrlu af því að þær ættu að lenda í Keflavík rétt fyrir setningarathöfn landsfundarins. Veit einhver hvort það varð af því? Veðrið gæti hafa sett strik í reikninginn, það var rok og rigning um fjögurleytið.
RÚV segir frá því að Sigurður Kári sé að beita sér fyrir því á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að ályktunardrögum um samgöngumál verði breytt. Í drögunum er lagt til að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni.
Heiða er með athyglisverðan samanburð á stefnu VG og Sjálfstæðisflokksins í nokkrum málum.
Óli Björn er með góða spurningu til Steingríms J. Sigfússonar: hvernig gengur það upp að óska eftir fjárstuðningi frá Alcan eftir að þú hafði uppi stór orð um þá "ósvinnu" að sama fyrirtæki væri kostunaraðili á Kryddsíld Stöðvar 2?
Það hefur lítið farið fyrir fréttum af því hvernig stóð á því að nú hefur slitnað upp úr samstarfi Höfuðborgarsamtakanna og baráttusamtakanna hennar Arndísar Björnsdóttur. Hér er sagt frá því að ástæðan sé sú að Arndís krafðist þess að Höfuðborgarsamtökin hættu við að berjast gegn flugvellinum en það var einmitt helsta ástæða þess að þau samtök voru stofnuð.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er orðin aðstoðarritstjóri DV, auk þess að vera umsjónarmaður Helgarblaðsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.4.2007 | 11:19
Meðal annarra jeppa
Aldrei hef ég séð jafnmarga jeppa samankomna á jafnlitlu svæði og í gær þegar ég átti erindi inn í Þróttarheimili á sama tíma og setningarathöfn landsfundar Sjálfstæðisflokksins stóð yfir í Laugardalshöllinni. Kíkti svo á upptöku af setningarathöfninni sjálfri á netinu.
Ég hef ekki séð jafnmikinn samruna stjórnmála og leikhúss á Íslandi og fram kom í því hvernig forysta flokksins steig upp á sviðið. Tjaldi var lyft og þá stóðu á sviðinu Geir Haarde og Þorgerður Katrín umkringd þingmönnum og frambjóðendum flokksins. Bakgrunnurinn var nánast sá sami og notaður var á fyrstu auglýsingaherferð Camerons fyrir breska íhaldsflokkinn, blár himinn yfir gróinni fjallshlíð.
Bæði Geir og Þorgerður voru með þráðlausa míkrófóna á sér og ávörpuðu samkomuna saman, þarna var staðfest að sjálfstæðismenn ætla að ekki reyna að ná upp einhverri leiðtogadýrkun á Geir einum heldur keyra á breiddina og samstöðuna. Ég held ekki að varaformaður hafi áður fengið svo stórt hlutverk við setningarathöfn landsfundar, ég tók þátt í að dekka þá nokkra þegar ég vann á Mogganum. Ræðan sjálf fannst mér ekki sæta miklum tíðindum, en mér fannst athyglisvert yfirlitið hjá Fréttablaðinu yfir það sem bar þar á góma og bar ekki á góma.
Það verður athyglisvert að bera saman fund sjálfstæðismanna og landsfund Samfylkingarinnar sem hefst í dag. Með því að halda fund sinn á sama tíma og sjálfstæðismenn býður Samfylkingin upp á margvíslegan samanburð á efni og umgjörð. Það var djarfur leikur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.4.2007 | 09:45
Mér sýnist hann vera að grænka
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.4.2007 | 09:44
Hrein tunga - langt nef
Það er ekki ólíklegt - miðað við skoðanakannanir - að Paul Nikolov eigi eftir að kynnast þingmannsstarfinu á næstu árum. Hann er í 3ja sæti í Reykjavík norður hjá VG og verður amk varaþingmaður nema skoðanakönnun Blaðsins sé fyrirboði þess að það sé að fjara undan VG. Paul er bandarískur og hefur búið hér á landi í nokkur ár. Því er ég að ræða hans persónu hér að hann bloggar hér á moggablogginu og lætur það ekki aftra sér frá því að skrifa á íslensku að tök hans á íslenskri málfræði eru langt frá því fullkomin. Þess vegna sér maður svona setningu á blogginu hans:
Ég fagna mjög þetta frétt. Hafnarfjörður á margir innflytjendur, og það er gott að sjá að það er til fjölmiðill sem endurspegla því.
Mér finnst það gott hjá Paul að láta málfræðina ekki stoppa sig frá því að tjá sig í rituðu máli en ég er klár á því að mörgum, sem aldir eru upp við hugmyndina um hreina tungu sem æðstu dyggð, finnst erfið tilhugsun að maður með svo "ófullkomin tök" á íslensku máli sé líklegt þingmannsefni. En þeir sem vilja líta fram hjá umbúðunum og leita að boðskapnum þurfa ekki að láta það þvælast fyrir sér og geta tileinkað sér framlag Pauls.
Það er svo annað mál að það vakna ýmsar spurningar setjist Paul á þing. Mun hann þurfa að einhverju leyti þjónustu túlks eða þýðanda til að tileinka sér efni þingskjalanna? Á hann þá ekki bara rétt á því rétt eins og þeir sem vegna heyrnar- eða sjónskerðingar þurfa aðstoð við þingstörfin? Það bíða áreiðanlega athyglisverðar umræður um endamörk fjölmenningarsamfélagsins og stöðu íslenskrar tungu þegar fyrsti 1. kynslóðar innflytjandinn sest á þing.
ps. leiðrétti hér setningu að ofan eftir ábendingu frá prófarkalesara síðunnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
12.4.2007 | 13:21
Glöggt er gests augað
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
12.4.2007 | 10:52
Kemur traustið að utan?
Samfylkingin kynnti í gær efnahagsstefnu sína og af því að það er margt til í því hjá Ingibjörgu Sólrúnu að þingflokkurinn nýtur ekki trausts þjóðarinnar var stefnumótuninni úthýst til fyrrverandi Seðlabankastjóra, sem ber hið þjóðlega nafn Jón Sigurðsson og var iðnaðar- og viðskiptaráðherra á ofanverðri síðustu öld. Samfylkingin hafði að nokkru leyti undirbúið jarðveginn fyrir kynningu þessarar stefnu með greinarskrifum framkvæmdastjóra ASÍ í siðustu viku.
Morgunblaðið fjallar í leiðara í dag um þessa efnahagsstefnu og bendir á að það sé dýpt og þungi í gagnrýni hins virta sérfræðings, sem mótað hefur stefnuna sem samþykkt verður umorðalaust á landsfundi umræðustjórnmálaflokksins mikla sem hefst á morgun. Sá böggull fylgi þó skammrifi að stefnan kalli á að forysta Samfylkingarinnar svari öðrum spurningum. Efnahagsstefna Jón Sigurðssonar felur í sér gagnrýni á hagstjórnina og kallar eftir því að dregið verði úr ríkisútgjöldum og fjárfestingaráformum ríkisins á næsta kjörtímabili. Því spyr Mogginn:
Úr því að þetta er mat Samfylkingarinnar hljóta forráðamenn hennar að upplýsa kjósendur um það hvaða útgjöldum ríkissjóðs þeir ætla að draga úr og hvaða fjárfestingaráformum þeir ætla að hægja á?
Ég tek undir þessa spurningu og í fullri hógværð býð ég Samfylkingunni afnot af kommentakerfinu hér til að koma svarinu á framfæri. Í leiðinni þætti mér vænt um að fá svar við annarri spurningu Moggans:
Ætlar Samfylkingin komist hún til valda t.d. að falla frá fyrirhugaðri tvöföldun hringvegar til austurs og vesturs frá höfuðborgarsvæðinu?
En auðvitað er það ósanngjarnt af mér, andstæðingi Samfylkingarinnar, að eigna Jóni Sigurðssyni einum efnahagsstefnuna sem kynnt var í gær. Auðvitað hafa forsvarsmenn flokksins sjálfir tekið þátt í starfinu. Líklega hafa þingmenn og jafnvel starfsmenn flokksins lagt hönd á plóg, t.d. í þeim köflum sem Morgunblaðið lýsir með þessum orðum:
Um leið og rit þetta einkennist af mikilli þekkingu á efnahagsmálum og yfirsýn koma þar líka fram skrýtnar vísbendingar um óraunsæi og takmarkaða þekkingu á því sem er að gerast í grasrót atvinnulífsins. [...] Svona fáránlegar staðhæfingar draga úr trúverðugleika kynningarrits Samfylkingarinnar um efnahagsmál.
Þannig að kenning mín er sú að Jón Sigurðsson eigi kaflana sem eru svona traustir en þingflokkurinn, sem nýtur jú ekki trausts, að sögn flokksformannsins, hina kaflana sem Mogginn segir að séu ekki traustir heldur skrýtnir. Var nokkuð að því spurt á blaðamannafundinum í gær hvort Jón Sigurðsson verði ráðherra á vegum Samfylkingarinnar í nýrri ríkisstjórn?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.4.2007 | 22:24
Seðlabankagrín
Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fer hörðum orðum um aðferðir Seðlabankans við að meta heilsufar íslensks efnahagslífs í fréttabréfi dagsins. Viðskiptahallinn er helmingi minni en Seðlabankinn heldur fram, segir Vilhjálmur. Bankinn vanmetur stórlega tekjur Íslendinga af erlendum eignum, segir hann. Í raun gerir Vilhjálmur gys að bankanum og segir:
Seðlabankinn gaf út tölur um viðskiptahalla og erlenda skuldastöðu fyrir árið 2006 hinn 6. mars sl. Niðurstaðan var sú að viðskiptahallinn hefði numið 305 milljörðum króna eða 26,7% af VLF og að hrein skuldastaða í árslok hefði verið neikvæð um 120% af VLF. Þessar tölur eru ótrúlega háar og ættu að vekja skelfingu meðal allra sem eiga hagsmuna að gæta í íslensku efnahagslífi. Samt virtust viðbrögð almennt vera furðu róleg og fæstir í raun trúa því að eitthvað mikið sé að í efnahagslífinu. [...] Ástæða þess að viðbrögðin eru ekki eins og þau hefðu átt að vera samkvæmt bókinni er fyrst og fremst sú að enginn kannast við þann raunveruleika sem tölurnar lýsa. Þær aðferðir sem Seðlabankinn notar til þess að safna saman tölunum og þær tölur, sem birtar eru, lýsa ekki þeim raunveruleika sem íslenskt efnahagslíf býr við. Allt væri á öðrum endanum í atvinnulífinu ef tölur bankans væru réttar, fjöldi fyrirtækja væri á vonarvöl, stórfellt atvinnuleysi framundan og lánstraust íslenskra banka og íslenska ríkisins væri á við það sem gerist meðal þróunarlanda.
Síðan gefur Vilhjálmur skýringar á því hvar hann telur skekkju bankans liggja:
Það eru einkum tvær ástæður fyrir því að tölur Seðlabankans stemma ekki við raunveruleikann. Fyrri ástæðan er sú að bankinn afskrifar að hluta til beinar fjárfestingar Íslendinga erlendis (og erlendra aðila hérlendis) þannig að þessar tölur eru stórlega vanmetnar. Seinni ástæðan er sú að söluhagnaður, áfallinn eða innleystur, er ekki talinn til tekna (eða gjalda) í útreikningum á viðskiptahalla í samræmi við alþjóðlega staðla. Það hefur í för með sér stórar skekkjur í mati á viðskiptahallanum vegna þess að Seðlabankinn gerir heldur ekki sérstaklega grein fyrir söluhagnaði eða öðrum verðbreytingum á eignum samhliða hefðbundum útreikningum á viðskiptahalla eins og staðlarnir gera ráð fyrir að hægt sé að gera.
11.4.2007 | 17:34
Ókeypis í strætó fyrir námsmenn
Ókeypis í strætó fyrir námsmenn í Reykjavík frá og með næsta hausti. Það eru fréttir. Var þetta ekki kosningaloforð hjá Birni Inga? Ég man ekki betur. Mér finnst þessi punktur líka mjög góður: "Þjónusta við sorphirðu verður bætt til að auka endurvinnslu. Boðið verður upp á bláar tunnur fyrir dagblöð frá heimilum og þjónusta á grenndarstöðvum verður aukin." Það er ekki vanþörf á og löngu tímabært.
Almennt finnst mér þessi nýja umhverfisstefna borgarinnar sem Vilhjálmur og Gísli Marteinn voru að kynna í dag til fyrirmyndar. Mér sýnist að í henni kristallist vel sá munur sem er á stíl þeirra sem láta athafnirnar tala og hinna sem láta umræðuna nægja.
Hvað á ég við? Jú, þessi stefna er aðgerðaráætlun, þar sem er að finna fjölmörg raunhæf verkefni og viðfangsefni sem borgarstjórnarmeirihlutinn ætlar að ráðast í. Menn geta séð fyrir sér hvernig svona áætlun hefði litið út frá meirihluta sem þar sem VG væri ráðandi. Vísbending um það kom fram í andstöðu flokksins við aðgerðir til þess að fækka mávum við Tjörnina. VG vildi frekar að farið yrði í átak til þess að efla hreinlæti í borginni. (Þó er - eins og einhver benti á - það afleiðing aukins hreinlætis við strandlengjuna sem mávagerið er meira áberandi en nokkru sinni fyrr.) Sem sagt: þeim megin eru abstraksjónir teknar fram yfir en áþreifanleg verkefni.
En athafnastjórnmálamennirnir í ráðhúsinu fara þveröfuga leið, þeir velja áþreifanleg og raunhæf verkefni sem borgarbúar verða varir við og munu breyta ásýnd borgarinnar.
Ókeypis í bílastæði fyrir vistvæna bíla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
11.4.2007 | 11:43
Úrslitaatriði og önnur atriði
Mér fannst athyglisvert að hlusta á Katrínu Jakobsdóttur, varaformann Vinstri grænna, í viðtali við Jóhann Hauksson á Útvarpi Sögu í morgun.
Meginatriði viðtalsins var spjall um stefnu VG í sjálfbærri þróun, sem verður víst kynnt í dag. Þau komu víða við, Katrín lýstu því yfir að hún útilokaði virkjun á háhitasvæðinu við Þeistareyki á næstu árum og kom það svo sem ekki á óvart. Það sem kom mér hins vegar á óvart var hvernig Katrín brást við spurningu Jóhanns um einkavæðingu orkufyrirtækja ríkisins, í þeim efnum skildi hún eftir smugu. Katrín lagði áherslu á þá VG teldu komið nóg af einkavæðingu í samfélaginu og það væri mikilvægt atriði í stefnu flokksins að grunnþjónusta eins og orkufyrirtæki og rekstur vegakerfisins væri áfram í opinberri eigu. En væri þetta úrslitaatriði, spurði Jóhann Hauksson, t.d. í stjórnarmyndunarviðræðum ykkar við Sjálfstæðisflokkinn? Katrín sagði að þetta væri mikilvægt stefnuatriði "en það alltaf erfitt að tala um úrslitaatriði þegar kemur að stjórnarmyndunum og slíku". Í viðræðum VG og Sjálfstæðisflokksins þyrfti um margt að semja enda væru þetta flokkar hvor á sínum á sstjórnmálanna "og við þurfum að sjá til en það er mjög skýrt að við teljum nóg komið af einkavæðingu," sagði Katrín og lagði sig fram um, fannst mér, að loka nú engum dyrum. Hlustið sjálf, hér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.4.2007 | 18:57
Undirskriftasöfnun
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
10.4.2007 | 12:55
Borið í bakkafullan...
Ég er sammála helstu álitsgjöfum, eins og Morgunblaðinu og Pétri Tyrfingssyni, um það að leiðtogaþátturinn í sjónvarpinu í gærkvöldi var ágætur á að horfa og gefur vonir um málefnalega og kúltíveraða kosningabaráttu. Það er sannarlega þakkarvert ef menn losna við þann brag sem var á þessu vorið 2003. Líklega er það rétt hjá nafna mínum að stærsta breytingin er vegna formannsskiptanna hjá Sjálfstæðisflokknum. Það er svo annað mál að sú breyting hefur ekki orðið pólitískum ferli Ingibjargar Sólrúnar til framdráttar, þvert á móti. Mér fannst það sjást á henni að sjálfsöryggið er ekki hið sama og áður, meðan hún var anti-Davíð, óöryggið braust fram í því að hún virtist hrædd um að gengið yrði fram hjá sér í þættinum og hún var nokkrum sinnum með innskot eins og: nú verð ég að fá að komast að og á ég ekki að segja eitthvað um ríkisstjórnina? Mér finnst Ingibjörg hins vegar alltaf leggja sig fram um að vera málefnaleg og ég skil illa hvað hún vekur heita andstöðu hjá mörgum, Guðmundur heitinn bloggari segir að stíll hennar sé gamaldags en ég hallast frekar að því að hún minni menn á Davíð, og margir telji að þau hefðu átt að leiðast saman inn í hið pólitíska sólarlag, fjandvinirnir.
Ég var líka ánægður með Jón Sigurðsson í þessum þætti og held að honum sé að takast jafnt og þétt að vinna á, hann hélt sig við sín meginskilaboð: áfram árangur - ekkert stopp. Það var helst að hann væri ekki nógu djarfur að kveðja sér hljóðs en það er hárfín lína og eins og fram kom að ofan fannst mér ISG fara yfir þá línu og virka fyrir vikið óörugg. Aðeins of kurteis við forsætisráðherrann, hefði viljað sjá hann greina sig betur frá honum en mér létti líka við að heyra hann tala niður þá hugmynd sem verið hefur í gangi að hann útiloki stjórnarsamstarf við VG og Samfylkingu, ég held að það hafi aldrei verið byggt á öðru en útúrsnúningi úr hans orðum, augljóslega gengur hann "óbundinn til kosninga" og semur við hvern þann flokk sem málefnaleg samstæða næst við ef sú staða kemur upp. Minn maður í þessu.
Steingrímur J. Sigfússon stóð sig líka vel og það er ljóst að hann ræður ágætlega við hlutverk yfirvegaðs og miðjusækins foringingja enda maður með yfir 20 ára reynslu. Framganga hans er önnur en áður, hann er ekki jafnreiður. Það örlaði á tilraunum til stjórnarmyndunar milli hans og Geirs H. Haarde þegar Steingrímur greindi frá þeirri stefnubreytingu VG að í stað þess að krefjast þess að fjármagnstekjuskattur yrði hækkaður úr 10 í 18% mundu þeir sætta sig við hækkun í 14%. Þetta er sjálfsagt ein stærsta hindrunin í vegi þess að VG og Sjálfstæðisflokkur geti náð saman um stjórnarmyndun, kemur beint að kjarna málsins um andstæða sýn flokkanna tveggja á stjórnmálin. Steingrímur er nú búinn að leggja sig fram um að lækka þá hindrun og getur illa gengið lengra en hann gerði í gærkvöldi án þess "að svíkja sína huldumey". Hins vegar er því enn ósvarað hvort Geir H. Haarde er tilbúinn að standa að því að hækka fjármagnstekjuskattinn úr 10% í 14%. Ég sé illa fyrir mér að landsfundur sjálfstæðismanna um næstu helgi samþykki neitt sem nýtist formanninum í slíkan leiðangur.
Annars finnst mér við hæfi að fara miklum viðurkenningarorðum um frammistöðu Geirs í þættinum, mér fannst hann frábær, nýtti tíma sinn vel með hárnákvæmum skilaboðum og beittri gagnrýni á andstæðingana þegar við á. Samt hógvær og alls ekki plássfrekur. Súrrealískasta augnarblik þáttarins var þegar Geir spurði Ómar Ragnarsson hvort það væri rétt að hann hefði viljað nýta aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar undir maraþonhlaup en ekki til raforkuframleiðslu og Ómar játti því. Þetta var eina óþægilega spurningin sem Ómar fékk í þættinum og mér fannst komast nokkuð vel frá sínu, hann var þarna í fyrsta skipti í þessum félagsskap og ég trúi því að stuðningsmenn hans séu sáttir. Mér er sagt að þetta sé í fyrsta skipti sem maður fái sæti í leiðtogaþætti án þess að vera kominn fram með einn einasta framboðslista og líklega hefur sú staðreynd að Ómar er og hefur verið þjóðareign áratugum saman auðveldað mönnum að víkja frá hefðinni.
Eins og við var að búast fórst Ómari best að tala um sitt hjartans mál, virkjanamálin, en hann á enn nokkuð í land í öðrum málum. Við viljum annars konar hagkerfi, annars konar atvinnustarfsemi, sagði hann meðal annars. Það var undarleg yfirlýsing, eitt andartak fannst mér ég vera að hlusta á gamlan byltingarsinna. Hann þarf væntanlega að útskýra þessar hugmyndir betur síðar. Eins efast ég um að hann tali mikið meira um 150.000 kr. skattleysismörk, sem kostar um 60 milljarða króna eða um 20% af ríkisútgjöldum að hrinda í framkvæmd. Ekki trúverðugt.
Guðjón Arnar Kristjánsson var líka í þættinum og það kom í ljós að það er engin leið að fá botn í útlendingastefnu flokksins og að Guðjón hefur ekki sannfæringu fyrir henni sjálfur, tilraunir hans til að tala máli hennar skorti sannfæringarkraft, sem betur fer, enda var hann þarna aleinn á báti og hefur horfst í augu við að þetta mál nær ekki í gegn hjá fólki. Hann sagði að á næstunni mundu frjálslyndir kynna fleiri mál, sjávarútvegsmál, samgöngumál og fleira. Mér fannst gæta tilhlökkunar í málrómnum eins og Guðjón vildi helst af öllu aldrei þurfa að tala um útlendingamálin oftar og gæti ekki beðið eftir því að fá að tala aftur um sjávarútveg og jarðgöng. Ég hlakka til þess líka og er viss um að hann sækir í sig veðrið þegar þar er komið sögu.
Uss, þetta er orðin allt of löng færsla.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
9.4.2007 | 18:25
Hægar sagt en gert
Fyrir viku var Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði að rifja upp athyglisverða sögu í Íslandi í dag. Það var í upphafi árs 2003 að Vestfirðingar lýstu því yfir að landshlutinn yrði stóriðjulaus. Þetta var þegar framkvæmdir fyrir austan voru að hefjast og andstæðingar þeirra höfðu talað um að hægt væri að búa til 700 störf við eitthvað annað. Í viðtali við Moggann 29. janúar 2003 tók Halldór þau á orðinu og sagði:
Hann segir Vestfirðinga ekki hafa kallað eftir stóriðju, líkt og aðrir landshlutar, og því eigi þeir ákveðna samleið með fólki sem vilji nýta náttúruna á annan hátt en með virkjun fallvatna og stóriðju. Sjálfur vill hann virkja hugmyndir þessa fólks og fá það til samstarfs um nýtingu sóknarfæra sem felast í aukinni ferðaþjónustu í stórbrotinni náttúru. Á Vestfjörðum sé ekki eins mikil víðátta og fyrir norðan Vatnajökul en mikið hálendi sé þar að finna, djúpa firði, elstu berglög landsins, fegurð Hornstranda, fjölbreytt fuglalíf, jökul, snarbrött björg, rauða sanda og sögufræga staði. [...] "Ég mundi gjarnan vilja að þeir sem eru í forsvari fyrir náttúruverndarsamtök gengju í lið með okkur eða bjóði upp á samstarf um að þróa svona verkefni hér," segir bæjarstjórinn.
Daginn eftir fagnaði Mogginn orðum Halldórs í leiðara og sagði hugmyndir hans athyglisverðar enda hefðu náttúruverndarsinnar legið undir ámæli fyrir að leggja ekki fram raunhæfar tillögur er komið gætu í stað stóriðju til lausnar bágbornu atvinnuástandi, svo sem á Austfjörðum:
Áeggjan hans er eftirtektarverð að því leyti að ef náttúruverndarsinnar taka henni af alvöru mætti nota Vestfirði - þótt þeir séu ekki í bráðri hættu frá náttúruverndarsjónarmiði - til þróunarstarfs, þar sem sýnt væri og sannað að aðrar leiðir en stóriðja séu færar í atvinnuuppbyggingu og eflingu efnahagslífsins. Þær forsendur sem þannig yrðu til á Vestfjörðum gætu, ef vel tekst til, orðið raunhæfur valkostur við stóriðju í framtíðinni og þannig komið í veg fyrir að enn lengra sé seilst í þá átt að skerða ósnortin öræfi landsins.
9.4.2007 | 15:32
Vel ort
Karl Sigurbjörnsson, biskup, í páskapredikun:
Hinn andlegi hafís guðleysisins lónar fyrir landi, og ískalda og vonarsnauða þoku stafar frá honum.
5.4.2007 | 11:48
Guðmundur Magnússon farinn að blogga aftur
Guðmundur Magnússon eðalbloggari er byrjaður að blogga aftur eftir örstutt hlé. Hann er kominn á nýjan stað, heldur sig nærri bloggátthögum okkar beggja og margra annarra bloggara og virðist ekki á þeim buxunum að snúa aftur á moggabloggið. Guðmundur segist hugsa þetta blogg sem dægradvöl yfir páskana en ég ætla að vona að hann haldi áfram fyrst hann er á annað borð byrjaður aftur. Slóðin hans er sjalfsagt.blogspot.com. Góða skemmtun.
5.4.2007 | 11:40
Leiðtogar og kannanir
Ég horfði hér í sveitinni á leiðtogaþáttinn í Norðausturkjördæmi á Stöð 2 í gærkvöldi. Könnunin sem birt var í upphafi þáttarins var sláandi og vissulega er það ótrúleg niðurstaða að framsókn mælist þar aðeins með tæp 13%. Þess vegna var mér létt þegar Gallup könnunin í Mogganum í dag sýnir Framsókn með 19,6% í þessu sama kjördæmi. Samt hlýtur þessi staða að vera Valgerði Sverrisdóttur og hennar fólki áhyggjuefni en þau voru með um 32% atkvæða þarna síðast.
En ég held að þessi könnun hafi ekki verið Steingrími J. að skapi og í dag staðfestir Gallup að VG er á leið niður brekkuna, þeir tapa 5% frá Gallup-könnuninni 15. mars. Raunar sýnist mér að síðan þá hafi 5% færst frá Vinstri grænum til Íslandshreyfingarinnar og 2% farið frá Samfylkingunni, eitt til Sjálfstæðisflokksins og annað til Framsóknarflokksins. Steingrímur er annars að standa sig nokkuð vel í þessari baráttu þykir mér. Hann er í þeirri stöðu að vera þekktasti formaðurinn á sviðinu núna og kannski sá sem hefur mestan karisma. Það mætti segja að hann sé að reyna að hlaupa í ákveðið skarð sem Davíð Oddsson skildi eftir sig, svo ótrúlegt sem það kann að hljóma.
Mér fannst merkilegt að heyra Steingrím ekki útiloka það að setja Vaðlaheiðagöng í einkaframkvæmd. Honum er greinilega umhugað um að viðhalda möguleika á samstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Það var líka athyglisvert að hlusta á eggjahljóðið í Steingrími og Kristjáni Þór, en sá síðarnefndi virtist býsna áhugasamur um að vinna með VG í ríkisstjórn. Raunar held ég að það sé alveg rétt sem Kristján Þór sagði í þættinum að það er mikið kallað eftir breyttri ríkisstjórn í þjóðfélaginu.
Síðast en ekki síst var gaman að fylgjast með Sigurjóni Þórðarsyni, sem greindi frá því að hann væri nýbúi í kjördæminu, ætlaði að flytja til Akureyrar frá Sauðárkróki og treysti því að vel yrði tekið á móti honum í kjördæminu. Að öðru leyti talaði hann um sjávarútveg. Þannig að Sigurjón rekur kosningabaráttu sem byggist á því að í Norðausturkjördæmi vilji menn taka vel á móti nýbúum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.4.2007 | 11:12
Aðalmál kosninganna að mati Guðjóns Arnars
Jón Magnússon og Magnús Þór Hafsteinsson héldu í gær fund um stefnu Frjálslyndra í málefnum útlendinga. Þeir félagar virðast ná vel saman í pólitíkinni og eru á oddinum í umræðum um málefni útlendinga. Það hefur hins vegar vakið athygli mína að þegar þau mál eru nefnd við Guðjón Arnar Kristjánsson, formann flokksins, fer hann iðulega undan í flæmingi og gefur til kynna að þetta sé nú ekki mikið mál og verði ekki látið þvælast fyrir samstarfi við aðra flokka. Ég ákvað að rifja upp í þessu sambandi hvernig Guðjón Arnar talaði um þessi mál í leiðtogaþætti á Stöð 2 á miðvikudag í síðustu viku.
Svona svaraði Guðjón Arnar spurningu Egils Helgasonar um hver yrðu aðalmálin í kosningunum:
Í okkar kjördæmi, norðvesturkjördæmi eru það auðvitað atvinnumál og byggðamálin í heilu lagi en á landsvísu tel ég að það sé mjög mikilvægt að ræða velferðarmálin, fara í gegnum þá umræðu, taka á málum öryrkja og aldraðra, tryggja það að það fólk sem hefur lægstu launin í þessu þjóðfélagi geti komist af á tekjum sínum og það er ekki sú stefna sem ríkisstjórnin hefur rekið t.d. í skattamálum. Því miður. Þeir hafa farið aðra leið og ýtt undir þá sem hafa hærri tekjurnar en tekið þá niður sem hafa lægri tekjur.
Ekki orð um útlendinga frá formanninum þegar rætt er um aðalmál kosningabaráttunnar. (Í sama þætti nefndi reyndar Jón Bjarnason, oddviti VG í Norðvesturkjördæmi, umhverfismál ekki sem aðalmál fyrr en Egill minnti hann á þau).
Tenglar
Bloggarar
- Björn Ingi
- Freedom Fries
- Denni
- Andrés J
- Jakob
- Helga Sigrún
- Axel
- Arna
- Tómas
- Friðjón
- Davíð Logi
- Eygló Harðar
- Guðmundur
- Sigmar
- Eiríkur Bergmann
- Ómar
- Hallur
- Stefán Fr.
- Ragnar B
- Aðalheiður
- Magnús
- Valdimar
- Bjarni Harðar
- Gísli Freyr
Fleiri bloggarar
- Sveinn Hjörtur
- Bæjarstjórinn
- Egill
- Óli Björn
- Össur
- Helga Vala
- Helgi
- Andrés M
- Sæunn
- Jón Axel
- Fanný
- Snorri
- Stefán Pálsson
- Valgerður
- Hrannar B
- Baddi
Og fleiri
Enn fleiri bloggarar
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 536804
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar