21.3.2007 | 17:02
Framtíðin og landið og fleira
Einar Már Sigurðarson, Helgi Hjörvar, Kristján L. Möller og Lúðvík Bergvinsson eru þeir einu meðal þingmanna Samfylkingarinnar sem stefna að endurkjöri, sem enn hafa ekki undirritað sáttmálann Framtíðarlandsins. Kannski þeim finnist að þingmenn eigi bara að halda sig við ákvæði stjórnarskrárinnar um að þeir séu eingöngu bundnir af samvisku sinni og eigi ekki að sverja öðrum en henni hollustueiða.
Þingmannsefni Samfylkingarinnar, þau Guðbjartur Hannesson, Karl V. Matthíasson, Lára Stefánsdótir, Gunnar Svavarsson og Róbert Marshall hafa enn ekki látið undan þrýstingnum. Það hafa þau hins vegar gert, Ingibjörg Sólrún, Össur, Jóhanna, Mörður, Ágúst Ólafur, Ásta Ragnheiður, Katrín Júl., Þórunn Sveinbjarnardóttir og Björgvin G. Sigurðsson. Mér sýnist Jónína Bjartmars vera eini þingmaður eða þingmannsefni stjórnarflokkanna sem skráð hefur sig á listann.
Athygli vekur að nöfn þekktra fréttamanna, sem fjalla mikið um stjórnmál og deilur um virkjanamál, er að finna meðal þeirra 4,709 sem nú hafa undirritað sáttmála Framtíðarlandsins. Þeirra á meðal eru Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, varaformaður Blaðamannafélags Íslands, og Björg Eva Erlendsdóttir, formaður Félags fréttamanna.
Athyglisverð umræða hefur farið fram um fjármögnun hins mikla átaks Framtíðarlandsins hér á blogginu og þann mikla kraft sem einkennir söfnun undirskrifta á sáttmálann. Þar vísa ég sérstaklega til pistla Björns Inga, Árna Helgasonar og Andrésar Jónssonar.
Sáttmáli Framtíðarlandsins mun liggja frammi til undirritunar á vef samtakanna í 15 daga. Dæmi um velheppnaðar undirskriftasafnanir undanfarin ár er söfnun samtakanna Blátt áfram vegna fyrningar kynferðisbrota. Þar söfnuðust um 14.000 undirskriftir. Þá skrifuðu um 32.000 manns á undirskriftasöfnun sem fram fór vegna umdeildrar birtingar fréttar í DV snemma á síðasta ári.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:18 | Facebook
Tenglar
Bloggarar
- Björn Ingi
- Freedom Fries
- Denni
- Andrés J
- Jakob
- Helga Sigrún
- Axel
- Arna
- Tómas
- Friðjón
- Davíð Logi
- Eygló Harðar
- Guðmundur
- Sigmar
- Eiríkur Bergmann
- Ómar
- Hallur
- Stefán Fr.
- Ragnar B
- Aðalheiður
- Magnús
- Valdimar
- Bjarni Harðar
- Gísli Freyr
Fleiri bloggarar
- Sveinn Hjörtur
- Bæjarstjórinn
- Egill
- Óli Björn
- Össur
- Helga Vala
- Helgi
- Andrés M
- Sæunn
- Jón Axel
- Fanný
- Snorri
- Stefán Pálsson
- Valgerður
- Hrannar B
- Baddi
Og fleiri
Enn fleiri bloggarar
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það verður fróðlegt að sjá hvernig heimturnar verða í þessari söfnun þegar yfir líkur 4.915 hafa skráð sig núna. Minni á að á yfir 25 þúsund skrifuðu undir áskorun um tvöföldun Suðurlandsvegar með nafni og kennitölu fyrir skemmstu, en markið var sett á 10 þúsund. Það átak var án auglýsinga og stóð í mánuð:
www.sudurlandsvegur.is
Veistu Pétur hvert er markmið samtakanna hvað fjölda varðar?
Eyþór Laxdal Arnalds, 21.3.2007 kl. 19:52
Það eru ótrúlega lélegt að eftir allan þá fjölmiðlaathygli sem söfnunin hefur fengið, heilsíðu auglýsingar í blöðum svo ekki sé talað um rándýrar sjónvarpsauglýsingar séu aðeins ríflega 4.000 manns skráðir.....stundum geta svona hlutir snúist í höndunum á fólki og í staðinn fyrir að festa umhverfismálin í sessi sem aðal kosningamálið þá gæti þetta sýnt frambjóðendum fram á að það sé aðeins hávær minnihluti sem virkilega láti sig málið varða.
Allt undir 15-20þúsund hljóta aðstandendur að túlka sem vonbrigði.
Daníel (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 20:20
Já það er mikið rétt, hvað skyldu margir vera skráðir í samtökin?
Það er greinilegt á blogginu í dag hjá mér og fleirum að þessi mál eru ofarlega í hugum margra og þá helst skortur á því að fólk líti á stóru myndina.... þetta er ekki bara svona grænt eða grátt eins og verið er að predika.
Herdís Sigurjónsdóttir, 21.3.2007 kl. 20:54
Hefði aldrei órað fyrir að öfgasinnar í umhverfismálum gætu staðið fyrir jafn
mikilli múgsefjun og raun ber vitni. Og nú stefnir allt í það að STÓRA STOPPIÐ
í vor verði með tvö framboð. Trúi samt á skynsemi meirihluta kjósenda í vor.
Þjóðin fer ekki að kjósa yfir sig stöðnun, kreppu og atvinnuleysi þegar henni
standa til boða áframhaldandi hagsæld og framfarir. Bara trú því ekki!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 21.3.2007 kl. 21:22
Klámskjóður nokkrar fengu ekki inni á hóteli hér á dögunum og þá fór landið á hliðina vegna þess að svo margir misstu spón úr aski sínum um land allt en nú eru störf í ferðaþjónustu allt í einu orðin einskis virði vegna þess að einhverjir í Hjálpræðishernum í Hafnarfirði heimta stærra álver! Er þetta trúverðugur málflutningur? Á nú að fara að flytja inn enn fleiri útlendinga, fleiri þúsund, ef ekki tugi þúsunda, til að vinna í ferðaþjónustunni, eins og gert var í fiskvinnslunni, og stækka og reisa ný álver fyrir Íslendingana?! Störf við stóriðju höfða mun meira til karla en kvenna og hér er ekkert atvinnuleysi. Er nú ekki löngu kominn tími til að leggja áherslu á konur í þessu landi? Hins vegar vinna bæði karlar og konur í ferðaþjónustunni, að sjálfsögðu. Ferðaþjónusta fer stórum vaxandi hér, árlegur vöxtur hennar er gríðarlegur og störfum í þessari þjónustu fjölgar um mörg þúsund á ári. Stóriðja og ferðaþjónusta fara ekki saman, því byggja þarf stórvirkjanir og stór raflínumöstur út um allar koppagrundir til að koma nauðsynlegri raforku til stóriðjuveranna, sem valda þar að auki mengun. Erlendir ferðamenn koma ekki hingað til að sjá slíka hluti. Það er nóg af þeim í þeirra heimalöndum. Þeir koma hingað til að njóta óspilltrar náttúru sem lítið er af í þeirra heimabyggð. Raflínur út og suður spilla öllum sjónlínum til fjalla og jökla og hvorki íslenskir né erlendir ferðamenn vilja sjá slíka hluti.
Gríðarlega mörg fyrirtæki njóta góðs af fjölgun ferðamanna hér með beinum hætti, til dæmis Flugfélag Íslands en hjá þeim var 8% fjölgun farþega í fyrra, Icelandair, IcelandExpress, hótel, veitingastaðir og bílaleigur. Störf í ferðaþjónustu eru ágætlega launuð hér og með auknum fjölda ferðamanna hingað til lands yrði hægt að greiða enn hærri laun í ferðaþjónustunni, alveg eins og hægt yrði að greiða hærri laun í álverum ef eftirspurn eftir áli eykst. Hins vegar er alls óvíst hvernig hún verður í framtíðinni, því fyrr eða síðar verður farið að nota önnur efni í stað áls, ódýrari eða umhverfisvænni í framleiðslu. Auk þess verður að öllum líkindum skrifað undir nýtt alheimssamkomulag um losun gróðurhúsalofttegunda á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Danmörku árið 2009, eftir einungis tvö ár, og Kyoto-bókunin rennur út árið 2012. En að sjálfsögðu munum við halda áfram að nota hér rafmagn í einhverjum mæli, til dæmis tiltölulega ódýrt næturrafmagn til að hlaða rafbíla á nóttunum, en nú þegar hefur verið framleiddur rafbíll sem kemst upp í hundrað kílómetra hraða á nokkrum sekúndum. Þá mun Krossanesverksmiðjan og fleiri verksmiðjur framleiða umhverfisvænt eldsneyti fyrir fiskiskipaflotann okkar. Mengun af umferð og fiskiskipum verður því mun minni í framtíðinni en nú er, enda þótt hún komi til með að aukast.
Við þurfum ekki á frekari stóriðju að halda hérlendis. Hér búa einungis 304 þúsund manns og ef íbúunum fjölgar um 1% á ári, eins og árið 2004, verðum við orðin 320 þúsund eftir fimm ár. Á Húsavik er ekkert atvinnuleysi og þar vinna margir útlendingar vegna þess að innfæddir Húsvíkingar hafa flutt í burtu og búa nú til dæmis í Reykjavík, þar sem þeir hafa keypt húsnæði og öll þjónusta er mun betri en á Húsavík. Það er mjög hæpið að þeir færu að taka sig upp með allt sitt hafurtask, selja húsnæðið, segja upp vel launaðri vinnu og flytja aftur til Húsavíkur til að vinna í álveri, bæði hjónin. Það þarf mörg hundruð manns til að halda álveri gangandi. Ekki dytti Dalvíkingum í hug í einhverri alvöru að reisa hjá sér álver eða svipuð kompaní. Þeir hafa þar til dæmis Sæplast og fullkomið frystihús, sem greiðir góð laun, er með góðan aðbúnað og með marga Íslendinga í vinnu. Á Húsavík hafa menn til dæmis tekjur af hvalaskoðun og enginn veit hversu miklu meiri tekjur okkar af ferðamönnum yrðu ef við veiddum enga hvali, því þessar veiðar okkar eru mjög óvinsælar um allan heim. Hvers vegna þá að taka þessa áhættu með veiðunum þegar ávinningurinn er enginn og menn hlæja að þessari heimsku, sem jafnvel sjálfur fríherrann Munchhausen hefði verið stoltur af?! Hversu mikil eru ruðningsáhrif heimskunnar?
Hingað munu koma erlendir ferðamenn, hvort sem við viljum það eða ekki. Við getum ekki bannað þeim það. Við höfum gert alþjóðlega samninga um heimsviðskipti og slíkt gengi ekki. Þá myndu aðrar þjóðir geta bannað okkur að ferðast til sín og hætta að kaupa af okkur fisk. Við gætum hins vegar sett einhvers konar aðgangskvóta á erlenda ferðamenn hér til að vernda náttúruauðlindir okkar, svipað og við höfum sett kvóta á aðgang að sjávarauðlindum okkar. Ferðamenn yrðu þannig að greiða tiltölulega hátt gjald til að sjá til dæmis Gullfoss og Geysi. Sumir væru tilbúnir að greiða slíkt gjald en aðrir ekki. Einnig gætu til dæmis rútubílstjórar innheimt sérstakt gjald af sínum farþegum fyrir að keyra þá að Dettifossi. Ef einhverjum finnst slíkt fáránleg hugmynd má benda þeim á að ef 1% Kínverja kæmi hingað til Bing Dao, Snjóeyjunnar sem þeir kalla svo, yrðu það 13 milljónir manna á ári, og velmegun vex nú geysilega ört í Kína og mörgum öðrum löndum í heiminum. Og ferðamennska vext geysilega ört á hverju ári um veröld alla, þrátt fyrir hörmungar og stríð í ákveðnum heimshlutum. Út vil ek.
Erlendir ferðamenn eru farnir að koma hingað í stórum stíl allt árið. Þeir fá sín frí allan ársins hring, þegar vetur er hér, er sumar á suðurhveli jarðar og víða í Asíu er regntími en ekki vetur. Ferðamennirnir vilja til dæmis sjá norðurljósin hér á vetrin, þannig að þau eru nú þegar margseld, sjá snjó, fara á skíði og snjóbretti, keyra upp á jökla og skemmta sér í Reykjavík. Og á sumrin vilja þeir sjá hér til dæmis hvali, miðnætursólina, ganga á fjöll, sigla á flúðum, spila golf, njóta næturkyrrðarinnar og fuglasöngsins, óspilltrar náttúru. Raforkuver, stóriðjur og raflínur út um allar þorpagrundir er ekki óspillt náttúra. Haldi einhver slíkt er það misskilningur. Fyrir nokkrum áratugum voru grafnir djúpir skurðir um landið þvert og endilangt en nú er verið að fylla upp í þá aftur. Slíkt er að sjálfsögðu einnig hægt að gera í Hafnarfirði, ef mönnum sýnist svo, en norður í Svarfaðardal voru slíkir menn kallaðir Bakkabræður og fór mörgum sögum af þeim.
Erlendir ferðamenn hér voru um 400 þúsund talsins í fyrra og gjaldeyristekjur af þeim voru þá samkvæmt Seðlabanka Íslands um 47 milljarðar króna, um 155 þúsund krónur á hvern einasta Íslending, þar sem við erum nú 304 þúsund talsins, eða sjö milljörðum, 18%, meira en árið áður. Ferðamenn eyða hér um 100 þúsund krónum hver og einn að meðaltali, samkvæmt Ferðamálastofu, og um 20% fleiri ferðamenn komu til landsins fyrstu tvo mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. Haldi ferðamönnum áfram að fjölga hér með sama hraða verða þeir orðnir ein milljón talsins eftir fimm ár, árið 2012. Þá yrðu tekjur af þeim orðnar um 100 milljarðar króna á ári, um 300 þúsund krónur á hvern Íslending, helmingi meiri en nú, fjölgi okkur Íslendingum um 1% á ári, eins og árið 2004, en þá verðum við orðnir um 320 þúsund eftir fimm ár. Afleidd störf í ferðaþjónustu eru að sjálfsögðu fjölmörg. Margir vinna til dæmis við leiðsögu, leigubíla- og rútuakstur, sölu á veitingahúsum, börum og skemmtistöðum. Samkvæmt launakönnun VR í fyrra voru til dæmis meðallaun í gestamóttöku um 200 þúsund krónur á mánuði, starfsfólks hótela, veitingahúsa og ferðaskrifstofa um 260 þúsund krónur, í samgöngum á sjó og landi og í flutningaþjónustu 280 þúsund krónur og í flugsamgöngum um 300 þúsund krónur á mánuði.
Steini Briem (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 21:43
Eyþór, nei ég veit ekki hvert markmiðið þeirra var en miðað við það sem í er lagt finnst mér árangurinn enn sem komið er ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Steini, farðu að blogga.
Pétur Gunnarsson, 21.3.2007 kl. 22:24
Ó, þá náð að eiga álver,
einkavin í hverri þraut.
Ó, þá heill að halla mega
höfði sínu í álsins skaut.
Ó, það slys því hnossi að hafna,
hvílíkt fár á þinni braut,
ef þú blindur vilt'ei varpa
von og sorg í álsins skaut.
Eigir þú við böl að búa,
bíðir freistni, sorg og þraut,
óttast ekki, bænin ber oss
beina leið í álsins skaut.
Hver á betri hjálp í nauðum?
Hver á slíkan vin á braut,
hjartans vin sem hjartað þekkir?
Höllum oss í álsins skaut.
Ef vér berum harm í hjarta,
hryggilega dauðans þraut,
þá hvað helst er stærra álver
hjartans fró og líknar skaut.
Vilji bregðast vinir þínir,
verðirðu einn á kaldri braut,
flýt þér þá að halla og hneigja
höfuð þreytt í álsins skaut.
Steini Briem (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 22:45
Öll dýrin í skóginu eiga að vera vinir!
Hver skrifar ekki undir það?!
Sáttmálinn er margræð almenn yfirlýsing. Þeir sem skrifa undir hann gera það á mjög ólíkum forsendum. En nánast allir Íslendingar geta gert það.
Hvers vegna ekki að safna undirskrifum um efttirfarandi: Engar frekari virkjanir fallvatna næstu fimm árin. Það er konkret og pottþétt og fer ekkí á miilli mála.
Hugvit.... hvar er vitið annars staðar en í huganum. Þessi rembingur og bull ómenntaðara manna og kvenna um menntun fer í taugarnar á mér. Hvers vegna ekki bara að safna undirskriftum um einn milljarð extra til Háskóla Íslands eða buna einum og hálfum í Vísindasjóð.
Pétur Tyrfingsson, 22.3.2007 kl. 02:44
Steini Briem farðu að blogga og hlífðu athugasemdakerfinu við þessum ritgerðum.
Egill Arnar (IP-tala skráð) 22.3.2007 kl. 08:23
Ja, það eru komnar yfir 7000 undirskriftir eftir að átakið hefur staðið í eina viku. Það telst væntanlega ágætur árangur.
Svala Jónsdóttir, 25.3.2007 kl. 23:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.