Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
15.12.2006 | 10:07
Sme hent á dyr í morgun
Sme var hent út af ritstjórn Blaðsins þegar hann mætti til vinnu í morgun. Hann var kallaður á fund Sigurðar G. Guðjónssonar, Karls Garðarssonar og Steins Kára Reynissonar, auglýsingastjóra, afhent bréf og beðinn að koma sér út. Í bréfinu kemur fram að Blaðið muni leita þeirra leiða sem færar eru til þess að koma í veg fyrir starf sme á öðrum fjölmiðlum. Sjálfur spyr sme á síðunni sinni hvort honum hafi verið hent út af leiðara sem hann skrifaði í blaðið í morgun og var hans síðasta verk og greinir frá því að Kristinn Björnsson hafi gert athugasemdir við ráðningu hans á sínum tíma.
Trausti Hafliðason nýráðinn ritstjóri Blaðsins er hins vegar enn á fréttastjóravöktum á Fréttablaðinu og er ekki að losna næstu daga. Hvað varðar framtíð fréttastjóra Blaðsins undir stjórn Trausta hefur Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir ákveðið að halda áfram starfi en Brynjólfur Guðmundsson er enn að hugsa sinn gang. Hann hafði boðist til að taka að sér ritstjórastarfið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2006 | 18:53
Legið á hleri
Síðdegisútvarp RÚV birti í dag umfjöllun um frásögn sem sögð var höfð eftir fyrrverandi lögreglumanni í Reykjavík þar sem hann lýsti þátttöku sinni í hlerunum á símum fjölda fólks í Reykjavík á árunum 1970 til 1980. Þetta er stórfrétt og hið fyrsta markverða sem fram kemur um hleranamálin vikum saman.
Ég skildi umfjöllunina þannig að þetta hljóti að hafa verið hleranir án dómsúrskurða því að lögreglumaðurinn lýsti þessu - í óbeinni endursögn starfsmanna Rásar 2 - nánast sem daglegum þætti í sínu starfi. Það var sama hvort um var að ræða grun um refsivert athæfi, eða fólk sem aðhylltist einhverjar stjórnmálaskoðanir og jafnvel lögreglumenn sem taldir voru hafa vafasamar skoðanir. Samkvæmt viðmælanda Rásar 2 voru allir þessar hópar hleraðir án þess að nokkurrar heimildar dómstóla væri aflað.
Ég beið spenntur eftir framhaldi málsins í kvöldfréttum RÚV en þar var ekki orð um málið. Hvernig getur staðið á því? Felur það í sér efasemdir fréttastofunnar um vinnslu þessa efnis í síðdegisútvarpinu eða er einfaldlega verið að geyma málið? Það er afar óvenjulegt að birta ekki svona bombur í aðalfréttatíma.
Þessi frásögn er enn ein vísbendingin um að rannsóknir fræðimanna á hleranamálum hér á landi munu ekki leiða til þess að sannleikurinn allur komi í ljós. Til þess að menn fái að vita hvernig þessum málum var háttað og hvað hér er á seiði þarf einfaldlega að gera eins og krafist hefur verið: setja þarf lög þar sem þeim löggæslumönnum og starfsmönnum Landsímans er heitið sakaruppgjöf gegn því að þeir segi allt af létta. Fræðimenn rannsaka gögn, hér þarf að tala við fólk sem var að störfum á þessum tíma, ekki til að leita að sökudólgum í þeirra hópi, heldur til að leiða hið sanna í ljós.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.12.2006 | 18:45
Setið undir
En aðeins meira um að sitja undir. Í umfjöllun Helga Seljan í Kastljósi í gær var sagt að ég væri eða hefði verið "ritstjóri kosningavefs" Framsóknarflokksins. Nú veit ég ekki til hvers Helgi er að vísa en því var hvíslað að mér að með þessu væri verið að vega að og dylgja um þetta blogg mitt. Ekki held ég að það sé rétt en hitt veit ég að varla er Helgi þarna að vísa til þess að ég var um mánaðarskeið (mars 2005) ritstjóri hriflu.is, vefrits framsóknarfélganna í Reykjavík, og ekki held ég heldur að hann hafi verið að vísa til þess að ég ritstýrði tímanum.is þegar ég var framkvæmdastjóri þingflokks framsóknarmanna. Þannig að ég óska eftir að Helgi skýri nánar hvað hann var að fara, en einhverjir labbakútar í áróðursdeild Samfylkingarinnar hafa þegar hent þetta á lofti í framhaldi af krísufundum dagsins á þeim bæ.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
14.12.2006 | 15:34
Ullarpeysur íslenska ríkisins
Íslenska ríkið - við öll - hefur eignast 983 ullarpeysur, 128 prjónahatta, átta trefla, 27 húfur og tíu pör af vettlingum.
Við eignuðumst þetta með dómi héraðsdóms Austurlands, sem gerði varninginn upptækan til ríkissjóðs ásamt 1.300 geisladiskum. Allt fannst þetta í bíl sem tveir menn frá Perú komu með til landsins um borð í Norrænu. Þeir voru dæmdir fyrir að ætla að selja góssið en sjálfir sögðust þeir bara ekki hafa haft neinn stað til þess að geyma allan þennan lopa á meðan þeir skruppu til Íslands. Þess vegna hefðu þeir tekið prjónalesið með sér. Mér skilst að mennirnir hafi verið kyrrsettir hér á landi frá því 19. september meðan þeir biðu dómsins.
Nú þekki ég málsháttinn að fara með kaffi til Brasilíu, líka að fara með sand til Sahara en nú er komið nýr málsháttur: Þetta er nú eins og "að flytja lopapeysur til Íslands" og skal hann hafður um það að bera í bakkafullan lækinn, eða eitthvað í þá veru.
En nú stendur eftir vandinn: hvað á íslenska ríkið að gera við allar lopapeysurnar? Á að selja þær á uppboði tollstjóra næsta vor þannig að einhver útsjónasamur smákaupmaður geti keypt þær þar fyrir slikk og selt í Kolaportinu? Á að láta Stefán Jón Hafstein hafa þær með sér til Namibíu og nota þær þar sem hluta af þróunaraðstoð Íslendinga? Það er líklega ekki góð hugmynd af veðurfarslegum ástæðum.
En hvað með að setja í gang sérstakt þróunarverkefni sem snýst um það að koma lopapeysum íslenska ríkisins til fólks sem þarf á þeim að halda. Hvað með að skila þeim til Perú? Ég sting upp á því að Þróunarsamvinnustofnun gefi peysurnar fátækum í Perú. Aðrar hugmyndir eru vel þegnar í kommentakerfið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2006 | 10:16
Takk en nei takk
Þakka Mogganum fyrir að birta í heild ákærurnar í olíusamráðsmálinu. Veit að þetta er afskaplega vel meint og gert af níðþungri samfélagslegri ábyrgð.
Verst að ég hef ekki tíma til að lesa þessar átta pökkuðu blaðsíður af texta. Ég hefði haft hins vegar gjarnan viljað lesa þétta samantekt á ákæruefnunum á svona eins og einni síðu. Þess vegna hefði ég verið enn þakklátari ef ef blaðið hefði fengið einhvern af sínum frábæru blaðamönnum til þess að leggjast í virðisaukandi starfsemi með það hráefni, sem ákæran er, og draga út helstu atriði. Þeim er vel treystandi til þess. Forsíðufréttin bætir hins vegar litlu við það sem kom í ljósvakanum í gærkvöldi.
Skannaði ákæruna og sé að þótt talað sé um 27 ákæruliði er um að ræða í mörgum þeirra nokkra verknaði sem vísað er til. Líklega voru flestir sem vildu lesa ákæruna búnir að lesa hana á vef RÚV þar sem hún birtist í gær.
Sá sem les þetta og las líka ákæruna í heild í prentaða Mogganum má gjarnan gefa sig fram í kommentum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2006 | 20:23
10 kíló og 3 mánuðir
Helgi Seljan var rétt þessu að birta mynd af mér sem var tekin fyrir svona liðlega 10 kílóum síðan og nota sem myndskreytingu í umfjöllun um ráðningar til fyrirtækja og stofnana borgarinnar.
Það er rétt að ég hef um þriggja mánaða skeið unnið að verkefni á vegum Faxaflóahafna sem tengist nýjum vef fyrirtækisins. Markaðsstjóri fyrirtækisins stýrir því verkefni en vonir standa til að því ljúki um áramót. Ekki mun ég halda því fram að þetta verkefni mitt hafi ekkert með það að gera að ég er vinur Björns Inga Hrafnssonar, stjórnarformanns fyrirtækisins, og pólitískur samherji hans. En mér finnst líka rétt að koma því á framfæri að hér er ekki um fast starf að ræða og ekki auglýsinga- eða útboðsskylt verkefni. Sjálfur ætla ég ekki að dæma um getu mína til að sinna verkfninu.
Og mér finnst ágætt að Kastljósið fjalli um ráðningar í opinber fyrirtæki og stofnanir og vonandi verður framhald á. Kannski stæði þeim næst að fara yfir það hvort farið hafi verið að lögum, reglum og kjarasamningum um ráðningar umsjónarmanna í Kastljósið undanfarna mánuði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
13.12.2006 | 17:18
Tveir Traustar og annar ritstjóri
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.12.2006 | 13:05
Tæknileg mistök, vegamál og annað hvalræði
Staksteinar eru í dag að senda Árna Johnsen einhvers konar skilaboð um að það væri nú bara best fyrir hann að draga sig til baka af framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og líta svo á að hann hafi fengið nægilega mikla uppreisn æru með þeim árangri sem hann náði í prófkjörinu. Athyglisvert verður að sjá hvort Árni gerir eitthvað með þetta álit sinna gömlu samstarfsmanna og vina á Mogganum, sem stóðu við bakið á honum lengur en stætt var í tjarnardúksmálinu á sínum tíma. Mogginn treysti Árna og hann lét blaðið villa um fyrir lesendum sínum og prenta einhverja steypu um dúkinn sem hann var að flytja milli lands og Eyja meðan fjölmiðlar voru að fletta ofan af hans "tæknilegu mistökum".
En aftur að Staksteinum, þeir tala um áhyggjur áhrifamanna í Sjálfstæðisflokknum af stöðu ýmissa mála og nefna þar helst til sein viðbrögð Sturlu Böðvarssonar og Árna Mathiesen við kröfunni um úrbætur á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi. Allt rétt, þau viðbrögð voru ekki til fyrirmyndar. En hins vegar vakti það furðu mína í þessu sambandi að Staksteinar nefni ekki embættisferil Einars K. Guðfinnssonar, en þar hefur hvert óhappið rekið annað eins og Mogginn sjálfur hefur verið allra miðla duglegastur að halda til haga.
Þannig hjólaði blaðið af mikilli hörku í Einar vegna þess hvalræðis sem ákvörðun um veiðar á 30 hrefnum og níu langreyðum hefur leitt yfir íslenska hagsmuni. Sú ákvörðun hefur þegar eyðilagt markaðsstarf fyrir íslenskar matvörur í Bandaríkjunum og gert að verkum að málsmetandi menn og stofnanir neituðu Einari K. Guðfinnssyni um fund þegar hann kom vestur um haf í síðustu viku til þess að reyna að bæta fyrir skaðann. Þær skammir sem Íslendingar hafa fengið fyrir andstöðuna við bann við botnvörpuveiðum á úthafinu standa áreiðanlega í beinu sambandi við hvalræðisákvörðunina nokkrum vikum fyrr. Þegar þessi tvö mál eru tekin saman komast menn í Bandaríkjunum að þeirri niðurstöðu að Íslendingar séu siðferðislegir einfarar í málefnum hafsins eins og það var orðað í Washington Post.
Á nokkurra mánaða ráðherraferli hefur alþjóðlegri ímynd Íslendinga sem þjóðar sem er til fyrirmyndar í umgengni um auðlindir hafsins verið rústað og er óvíst hvort það tekst að endurreisa þá ímynd. Mogginn hefur ekki dregið af sér í gagnrýni á málið og beint henni allri að sjávarútvegsráðherranum. En þegar Staksteinar tala nú um þau mál sem helst séu flokksmönnum áhyggjuefni eru mál sjávarútvegsráðherra, sem þó hafa verið fyrirferðarmikil í umræðu blaðsins, ekki talin upp þar á meðal. Skyldi það vera vegna þess að Staksteinar vita sem er að raunverulega ábyrgð á hvalræðinu og eftirleik þess ber ber ekki síst formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra. Geir H. Haarde stóð ekki í lappirnar þegar á reyndi að berja niður kröfuna um hvalveiðar líkt og forverar hans Davíð og Halldór höfðu gert. Kannski eru Staksteinar að hlífa Geir fremur en Einari K. með því að halda þessum málum ekki til haga þegar rætt er um þau mál sem eru Sjálfstæðisflokknum erfið um þessar mundir.
13.12.2006 | 12:45
Vísvitandi rangfærslur, segir Eiríkur
Sigurjón M. Egilsson greindi frá því á bloggi sínu í gær að Eiríkur Hjálmarsson upplýsinafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur hefði kært blaðið fyrir siðanefnd Blaðamannafélagsins vegna umfjöllunar um samning fyrirtækisins við Orkuveituna. "Þessu verður vinnandi fólk að una og taka til varna," sagði -sme.
Eiríkur bregst við skrifum -sme á bloggi hans með því að birta kæru sína í heild athugasemd á bloggi ritstjórans. Þar kemur fram að m.a. er kært fyrir það sem kallað er vísvitandi rangfærslur í leiðara.
12.12.2006 | 19:33
Háskóli Samfylkingarinnar?
Einu sinni var Bifröst talin andleg miðstöð framsóknarmennskunnar í landinu. Að minnsta kosti þriðjungur þess þingflokks framsóknar sem kosinn var vorið 2003 var útskrifaður frá því sem einu sinni hét Samvinnuskólinn á Bifröst. Nú virðist það liðin tíð að kenna megi Bifröst við framsókn því nýr stjórnmálaflokkur hefur greinilega tekið Bifröst upp á arma sína. Það er valinn Samfylkingarmaður í hverju rúmi.
Ágúst Einarsson, fyrrverandi varaþingmaður Samfylkingarinnar var í dag ráðinn rektor á Bifröst, Ágúst er líka fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. Aðstoðarrektor er Bryndís Hlöðversdóttir, annar fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar. Fyrrverandi rektor, Runólfur Ágústsson, var frambjóðandi Þjóðvaka, sem þá var stjórnmálahreyfing en er nú Samfylkingarfélag. Fyrrverandi aðstoðarrektor var Magnús Árni Magnússon, sem um skamma hríð sat sem þingmaður frá 1998 til 1999. Fyrir hvern? Jú, Samfylkinguna. Svo er amk einn varaþingmaður sama flokks í kennaraliðinu, það er Eiríkur Bergmann Einarsson, sem er dósent, líka Birgir Hermannsson, sem var aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, þegar hann var umhverfisráðherra. Birgir er nú aðjúnkt við Háskólann á Bifröst.
![]() |
Ágúst Einarsson ráðinn rektor Háskólans á Bifröst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Tenglar
Bloggarar
- Björn Ingi
- Freedom Fries
- Denni
- Andrés J
- Jakob
- Helga Sigrún
- Axel
- Arna
- Tómas
- Friðjón
- Davíð Logi
- Eygló Harðar
- Guðmundur
- Sigmar
- Eiríkur Bergmann
- Ómar
- Hallur
- Stefán Fr.
- Ragnar B
- Aðalheiður
- Magnús
- Valdimar
- Bjarni Harðar
- Gísli Freyr
Fleiri bloggarar
- Sveinn Hjörtur
- Bæjarstjórinn
- Egill
- Óli Björn
- Össur
- Helga Vala
- Helgi
- Andrés M
- Sæunn
- Jón Axel
- Fanný
- Snorri
- Stefán Pálsson
- Valgerður
- Hrannar B
- Baddi
Og fleiri
Enn fleiri bloggarar
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 538270
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar