hux

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

"Þessir herramenn"

Jóhanna Sigurðardóttir blandaði sér loksins í kosningabaráttuna í þætti sjónvarpsins um félagsmál í kvöld. Ég hef verið að undrast það að Samfylkingin hafi haldið Jóhönnu til hlés í baráttunni og líka fólki eins og Helga Hjörvar og Ástu Ragnheiði - þetta eru einhverjir öflugustu þingmenn flokksins og hafa líka sterka félagslega skírskotun, þau er líkleg til að vinna flokknum fylgi frá Vinstri grænum. Kannski hefur planið verið það að geyma þau fram á lokaspretinn, sem framundan er. Það gæti borið árangur.

En Jóhanna mætti í kvöld og talaði um félagsmál enda þekkir hún þau mætavel eftir langan þingferil. En það sem vakti mesta athygli mína við framgöngu Jóhönnu var að hún nýtti hvert tækifæri til þess að beina spjótum að fulltrúum ríkisstjórnarflokkana með ávarpinu "Þessir herramenn". Þetta sagði hún oftar en ég hef tölu á og því oftar sem hún notaði ávarpið því augljósara varð að í hennar huga er þetta ekki eitthvert kurteisisávarp heldur argasta skammaryrði. Þegar ég horfði á þetta minntist ég þess að einhverjir voru að tala um það um daginn að líklega væri íslenska þjóðin sú eina sem notaði orðið herrar og herramenn sem skammaryrði, amk var það þannig að í munni Jóhönnu í kvöld hljómaði: "Þessir herramenn" svona álíka virðulega og ef hún hefði sagt: "Þessar kellingar".


Geir skiptir um gír

Það er athyglisvert viðtal við Geir H. Haarde, forsætisráðherra, í Viðskiptablaðinu í dag. Þar talar Geir mun ákveðnar gegn "stóriðjustoppi" og mun ákveðnar með stóriðjuframkvæmdum en ég hef séð frá honum lengi og glöggur maður benti mér á að hér kveði við aldeilis annan tón en einkenndi ræðu hans á Landsfundi flokksins fyrir rúmri viku. Eftir þann landsfund var tónninn talinn sá að sjálfstæðismenn vildu hægja á ferðinni í stóriðjumálum. En það er ekki aldeilis svo að sjá á þeim orðum sem höfð eru eftir Geir í Viðskiptablaðinu. Hann segir:

Stóriðjustopp yrði síst til fallið að sporna gegn yfirvofandi samdrætti. Þvert á móti höfum við séð það fyrir okkur að áframhald á stóriðju gæti komið í veg fyrir samdrátt í hagkerfinu. Með því á ég ekki við að allt þurfi að gerast í einu. Tímasetning stóriðjuuppnbyggingar þarf að vera rétt og það þarf að vera rými fyri rþær í hagkerfinu. Ég tel að þetta rými sé til staðar nýuna. Ég tel að reynslan af stóriðjuframkvæmdunum fyrir austan sýni að okkar hagkerfi er orðið nægilega stórt til að rúma svona aðgerðir. 


Uppskurður eða niðurskurður?

Niðurskurður í heilbrigðis- og velferðarkerfinu í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þetta er leiðarstef í kosningabaráttu stjórnarandstöðunnar. Andspænis því stefi teflir Sigfús Ingi Sigfússon, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, eftirfarandi staðhæfingu í grein í Blaðinu í dag:  

Framlög ríkisins til heilbrigðismála voru til að mynda áætluð ríflega 80 milljarðar á árinu 2006 og höfðu þá aukist að raungildi um 27,5 milljarða frá árinu 1998 eða um 49%. Framlög ríkisins samkvæmt fjárlögum 2006 námu um 8% af áætlaðri vergri landsframleiðslu. Árið 1998 nam þetta hlutfall 6,9%. [...] Framlög ríkisins til almannatrygginga og velferðarmála voru áætluð 73,4 milljarðar króna í fjárlögum 2006 og jukust að raungildi um 23 milljarða króna frá árinu 1998 eða um 45%. Framlög ríkisins til almannatrygginga og velferðarmála samkvæmt fjárlögum 2006 námu um 7% af áætlaðri vergri landsframleiðslu. Árið 1998 nam þetta hlutfall 6,3%.

Spurningin er vitaskuld þessi: Fer Sigfús með rétt eða rangt mál? Hann staðhæfir að staðreyndirnar séu svona og nú stendur upp á stjórnarandstöðuna að sýna fram á að hann fari með rangt mál.

Og fyrst ég er farinn að blogga um þetta er rétt að nefna það að frambjóðandi í 13. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, sem starfar sem stjórnandi á Landsspítalanum var í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld að tala um svikin loforð stjórnvalda og niðurskurð í málefnum geðsjúkra. Það er með hreinum ólíkindum að opinber embættismaður gangi fram með þessum hætti í kosningabaráttu sinni og ég gef mér að fréttamaður Stöðvar 2 hafi ekki vitað um pólitískan status viðmælandans.

En svo er þessi punktur: Ríkið úthlutar fjármunum til heilbrigðisstofnana,  þar á meðal LSH. Stjórnendur LSH og heilbrigðiskerfisins almennt hafa það verkefni að forgangsraða í rekstrinum innan sinna stofnana. Án þess að ég vilji halda því fram að stjórnmálamenn beri ekki pólitíska ábyrgð á rekstri sjúkrahússins vil ég benda á að stjórnendur í heilbrigðis- og velferðargeiranum eru aldrei spurðir: hvers vegna forgangsraðið þið með þessum hætti? Bitnar forgangsröðun ykkar stundum á þeim hópum, sem höllustum fæti standa, af því að þannig er best að fá fjölmiðla til liðs við ykkur í því að þrýsta á stjórnmálamenn um meiri framlög?


Þurr tár Árna Bergmann

Ég heyrði Árna Bergmann, fyrrverandi Þjóðviljaritstjóra, lýsa því yfir í viðtali við Frey Eyjólfsson á Rás 2 í dag að Boris Jeltsín hefði verið lélegur forseti og yrði grátinn þurrum tárum. Nú er ég lítið fyrir það að halda á lofti orðum Möggu Thatcher en ég hallast samt að því að hún hafi rétt fyrir sér um að kallsins verði lengi minnst, amk á Vesturlöndum. Það mun lifa minningin um það að Jeltsín var tákngervingur þess að sovéska hernum tókst ekki að brjóta aftur lýðræðisþróunina í Sovétríkjunum með vopnaðri uppreisn. Hver man ekki eftir honum við stjórnarbyggingarnar, standandi uppi á skriðdreka, hvetjandi hermenn til þess að hlýða ekki fyrirskipunum yfirmanna sinna? Þetta verður ekki af honum tekið þótt hann hafi misþyrmt lifrinni sinni meir og lengur en flestir aðrir og vakið athygli fyrir opinber drykkjulæti.

Það er líka ógleymanlegt að hafa heyrt Bóris Jeltsín lýsa því í sjónvarpi hvernig hann upplifði það að koma í fyrsta skipti í stórmarkað á Vesturlöndum og sjá aðganginn sem vestrænir fátæklingar höfðu að varningi sem aðeins forréttindastéttin í Sovétríkjunum gat látið sig dreyma um. Á þeirri stundu gerði hann sér ljóst að hann var alinn upp í hugmyndafræði lyga og blekkinga. Ég er ekki eins vel að mér um rússnekt stjórnmál og Árni Bergmann en ég held að Jeltsín verði lengi minnst sem eins eftirminnilegasta þjóðarleiðtogans á 10. áratug síðustu aldar.


mbl.is Thatcher: Án Jeltsíns væru Rússar enn í greipum kommúnismans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað tafði?

Ég stenst ekki mátið að geta þess að lesendur þessa bloggs hafa vitað um tilurð þessa samnings frá 18. apríl, eða í sex daga. Fréttastofur landsins tóku málið ekki upp heldur biðu eftir fréttatilkynningu. Hún kom í dag og þetta var fyrsta frétt Stöðvar 2 í dag, lesin af andstuttum Sigmundi Erni. Hvað tafði?
mbl.is Hitaveita Suðurnesja og Norðurál undirrita orkusamning vegna álvers í Helguvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG dagsins

Ögmundur Jónasson sér greinilega aðeins tvo möguleika á ríkisstjórnarmyndun í spilunum eftir kosningar: 1. Kaffibandalagið sem nýtur 3,9% fylgis þjóðarinnar. 2. Samstjórn VG og Sjálfstæðisflokksins. Af hverju dreg ég þá ályktun? Þessum orðum verðandi bankamálaráðherra VG í svari við lesendabréfi á heimasíðu sinni: 

Ögmundur vinnur greinilega markvisst gegn því að möguleikar myndist á samræðum milli VG og Framsóknarflokksins um ríkisstjórnarmyndun að loknum kosningum. Mér finnst það ágætt, enda held ég  að framsóknarmenn mundu ekki - fyrr að öðrum kostum fullreyndum - nema það væri stjórnarkreppa í landinu íhuga í alvöru að bera ábyrgð á því að færa VG þau völd sem felast í ríkisstjórnarsetu.

Kolbrún Halldórsdóttir skrifar grein í Moggann í framhaldi af grein Guðjóns Ólafs Jónssonar um daginn þar sem hann vakti athygli á því að á fundi með stúdentaráði hefði hún talið það koma til greina að leysa húsnæðismál stúdenta í Reykjavík með því að þeir flyttust í tómar íbúðir á varnarsvæðinu. Kolbrún mótmælir því að hafa sagt þetta en þegar ég les greinina get ég samt ekki fengið annað út en að Guðjón hafi sagt satt og rétt frá. Eða hvernig á að túlka þessi orð Kolbrúnar?


Hættir Tony Blair 9. maí?

Tony Blair mun láta af embætti forsætisráðherra Bretlands þann 9. maí næstkomandi, að því fullyrt er í breska blaðinu Sunday Mail í dag og haft þar eftir ónafngreindum þingmanni Verkamannaflokksins. Ég hef ekki séð þessa dagsetningu nefnda fyrr. Nánar hér og í þessari frétt Raw Story.


Össur á flæðiskeri

Jakob Ólafsson, þyrluflugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, skrifar grein í Moggann í dag til þess að andmæla hugmyndum um flugvöll á Hólmsheiði. Jakob telur Lönguskerjaflugvöll betri kost þótt helst vilji hann flugvöllinn á sama stað. En hann skynjar þungann í kröfunni um að Vatnsmýrarlandið verði nýtt í þágu borgarinnar og segir:

Ef bráðnauðsynleg þörf er talin vera á að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni þá er öllu skárra að hann flytjist þessa fáeinu hundruð metra út á Löngusker með þeim mikla tilkostnaði og fyrirhöfn sem því fylgir, en þar yrði veðurfar og flugtæknilegar aðstæður sambærilegar við þær sem eru á núverandi flugvelli og ekki síst yrði aðgangurinn að þjónustunni styttri og betri en uppi á Hólmsheiði. Á þetta ekki síst við um sjúkra- og neyðarflugið.

Jakob nálgast málið frá flugtæknilegu sjónarmiði og kemst að sömu niðurstöðu og Björn Ingi  Hrafnsson, Jónínu Bjartmarz og sá sístækkandi hópur sem sér að flugvöllur á Lönguskerjum er langlíklegastur til þess að sætta pólitískt þau sjónarmið að Reykjavíkurborg fái Vatnsmýrarlandið til nauðsynlegra nota en að höfuðborgin veiti landsbyggðinni áfram viðunandi þjónustu sem miðstöð innanlandsflugsins í landinu.

Össuri Skarphéðinssyni virðist ógna sú staðreynd að Löngukerjaleiðin, sem framsóknarmenn í Reykjavík báru fram í borgarstjórnarkosningum sl. vor,  á vaxandi fylgi að fagna í þjóðfélaginu, ekki síst eftir að samráðsnefnd samgönguráðherra og borgarstjóra gaf þeirri leið mjög góða einkunn í nýrri skýrslu. Því reynir hann að setja á spuna á bloggi sínu um málið en fer rangt með staðreyndir og eru útleggingarnar eftir því. Annað hvort hefur hann ekki séð kjördæmaþáttinn í Reykjavík suður og treyst ónákvæmri frásögn annars manns eða þá að hann hefur verið utan við sig þegar hann horfði. Ekki ætla ég honum að vilja fara rangt með staðreyndir.


Tifandi tímasprengjur

Samfylkingin virðist heldur vera að hressast í skoðanakönnunum, sem öll kosningabaráttan snýst um, og hvarvetna varpa Samfylkingarmenn öndinni léttar því að nú virðast þeir loksins komnir upp fyrir VG í fylgi. En léttirinn er samt kvíðablandinn því að það vofa skuggar yfir kosningabaráttu flokksins. Í farangrinum eru tvær tifandi tímasprengjur, Jón Baldvin Hannibalsson og Össur Skarphéðinsson, tveir flokksformenn, tvær prímadonnur sem líkar illa að vera ekki lengur í aðalhlutverki og hafa með reglulegu millibili valdið flokksbræðrum sínum og systrum angist og vandræðum.

Jón Baldvin var einu sinni enn í Silfri Egils í dag, eftir opnuviðtal við Kolbrúnu ævisöguritara sinn Bergþórsdóttur í Blaðinu í gær. Það verður að segjast um Jón Baldvin að því meir, sem hann talar, því meir talar hann af sér. Í dag kallaði hann Þorgerði Katrínu ljósku í Silfri Egils, í Lesbókargrein fyrir röskri viku lýsti hann nánast yfir stuðningi við Íslandshreyfinguna og í kjölfarið fóru í gang kenningar um að hann yrði forsætisráðherraefni Ómars Ragnarssonar, komist Ómar í oddaaðstöðu eftir kosningar. JBH hefur líka lýst því yfir að sameining vinstri manna í Samfylkinguna hafi misheppnast.  Það var verkið sem föður hans tókst ekki að ljúka á sínum pólitíska ferli en Jón Baldvin ætlaði að ljúka þess í stað, svona rétt eins og George W. Bush fannst að hann yrði að koma Saddam Hussein frá völdum af því að pabba hans hafði mistekist það. Nú virðist mega segja um Jón Baldvin það sem Bjarni Guðnason sagði um Hannibal gamla í aðdraganda þingrofsins 1974: "Hann er vestur á fjörðum og klýfur þar rekavið til þess að þjóna lund sinni." Kallinn hlýtur amk að vera kominn með vondan hiksta, svo illa tala fyrrverandi félagar hans og margir úr hópi lærisveinanna um hann nú orðið.

Össur Skarphéðinsson hefur allt síðan hann tapaði formannskosningu fyrir Ingibjörgu Sólrúnu verið órólegur, fyrst stóð hann fyrir öflugri stjórnarandstöðu innan flokksins sem var með öðru ástæða þess að fylgi flokksins rauk niður úr öllu valdi. Eftir prófkjör flokksins á liðnu hausti hristi hann vopn sín framan í formanninn og stærði sig af því að hvarvetna hefðu hans menn haft sigur í prófkjörum en hennar fólk tapað. Þótt Össur hafi haft fremur hægt um sig undanfarnar vikur og helst farið á stjá af og til síðla nætur á bloggi sínu eru flokksmenn hans enn órólegir og telja að hvenær sem er megi vænta þess að hann sprengi einhverja fýlubombuna framan í eigin forystu. Í síðustu kosningabaráttu spáði Össur miklu samdráttarskeiði og talaði um viðskiptahallann sem tifandi tímasprengju. Sú sprengja sprakk aldrei. Nú talar Samfylkingin hins vegar um aðrar tifandi tímasprengjur, sem geti sprungið framan í flokkinn hvenær sem er, og það eru þessir tveir fyrrverandi leiðtogar hennar sem þá er átt við.


Fingraförin á blogginu: Saga úr Mosfellsbæ

Góð nýjung hjá Moggablogginu að birta IP-tölur þeirra sem setja óskráðir inn komment við færslur. Sumir hafa skákað í skjóli nafnleyndar og gervinetfanga til þess að svívirða mann og annan hér og allur gangur á því hvort bloggarar hér, sem ég held að séu upp til hópa sómakært fólk, hafa undan því að eyða út óhróðrinum jafnóðum.

En um leið og Moggabloggið tók upp þennan sið á dögunum birtust líka IP-tölur þeirra sem sett hafa óskráð komment inn á bloggið í fortíðinni, þannig að nú skilja þeir eftir sig fingraför. Og ef marka má bréf sem mér barst áðan eru nú víða um bæinn menn í rannsóknarstörfum að átta sig á því hverjir hafa átt nafnlaus komment fram að þessu.

Sá sem sendi mér bréfið segir fréttir: Sama IP-tala birtist við komment sem Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar og 8. maður á sæti VG í Kraganum, skrifar óskráður í eigin nafni á eigin bloggsíðu og birst hefur á svívirðingakommentum á bloggsíðum Varmársamtakanna og annarra Mosfellinga. Hér eru nokkur dæmi, fyrst af síðu Karls sjálfs þar sem hann svarar kveðju annars bloggara án þess að skrá sig inn með þessum orðum:

  Á bloggi Hjördísar Kvaran birtist  svo sama IP-tala í kommenti sem er svohljóðandi:

Sem sagt: Sá sem setur inn athugasemdina undir nafninu Píka og forseti bæjarstjórnar í Mosó hafa sömu IP-tölu. Sú IP-tala kemur víðar við sögu í sömu færslu og fleirum á þessu mosfellska bloggi, og hér fylgir listi yfir óskráðar athugasemdir sem hafa borið með sér sömu IP-tölu og þá sem fylgdi forseta bæjarstjórnar: 

Píka (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 31.3.2007 kl. 00:42. 1

Ágúst (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 29.3.2007 kl. 16:18. 1

Þóra (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 30.3.2007 kl. 17:35. 1

Píka 2 (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 31.3.2007 kl. 00:47. 1

Ósk (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 31.3.2007 kl. 21:27. 1

Árni (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 31.3.2007 kl. 22:41. 1

Einar Óli (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 27.3.2007 kl. 14:28. 1

Karl Tómasson (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 1.4.2007 kl. 14:56. 2

Þórunn Jónsdóttir (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 14.4.2007 kl. 02:06. 2

Ólafur Gunnarsson (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 17.4.2007 kl. 19:23. 2

Lárus (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 17.4.2007 kl. 21:29. 2

Haukur Ólafs (Óskráður. IP-tala: 85.220.25.22) 13.4.2007 kl. 23:17

Uppfært kl. 15.59. Nú þekki ég lítið til tölvumála og veit ekki hversu óyggjandi tenging IP-tala er við einstaka notendur en ef svo er ekki þá er vandséð hvaða tilgangi birting þeirra þjónar.

ps. kl. 16.50 Í kommenti hjá mér er því haldið fram að eina ályktunin sem hægt er að draga sé sú að allir þessir nafnlausu höfundar kommenta séu með ADSL-hjá Símanum, ef svo er sýnist mér ljóst að það þjónar engum tilgangi hjá moggablogginu að vera að birta þessar upplýsingar.  En í gær barst mér og væntanlega öðrum moggabloggurum svohljóðandi póstur frá moggablogginu: "Kæru notendur blog.is. Eins og sumir hafa eflaust tekið eftir eru IP-tölur nú birtar við athugasemdir frá óskráðum gestum. Þessi breyting er skref í átt að betri auðkenningu óskráðra höfunda athugasemda. Með þessu fylgir möguleiki á að banna athugasemdir og gestabókarfærslur frá ákveðnum IP-tölum.  Á síðunni Blogg/Athugasemdir í stjórnborðinu er sýslað með tölurnar. Hægt er að slökkva á birtingu IP-talna ef þess er óskað, val um birtinguna má finna með því að velja Stillingar/Blogg/Frekari stillingar í stjórnborðinu.  Í fyrradag gerðum við ýmsar öryggisbreytingar á blog.is sem tengjast innskráningu og JavaScript-samskiptum. Ef þú hefur lent í vandræðum með innskráningu eða vistun bloggfærslna síðan þá, lestu þá leiðbeiningar um hreinsun forvistaðra skráa (cache) á síðunni http://mbl.is/go/binns . Við biðjumst velvirðingar á hvers kyns óþægindum sem þetta kann að hafa valdið. veðja, stjórnendur blog.is. blog@mbl.is"


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband