hux

Tveir Traustar og annar ritstjóri

Gott hjá Trausta Hafliðasyni að vera orðinn ritstjóri Blaðsins. Bestu hamingjuóskir. Trausti hefur verið  fréttastjóri á Fréttablaðinu og hefur starfað þar nánast frá upphafi, kom þá af Mogganum, þar sem hann hóf störf eftir að hafa lokið mastersnámi í blaðamennsku (ekki fjölmiðlafræði) frá háskóla í Arizona.  Eftir að -sme hætti á Fréttablaðinu og fór á Blaðið hefur Trausti stigið upp og orðið fremstur meðal jafningja á fréttadeild Fréttablaðsins. Brottför hans er blóðtaka fyrir Fréttablaðið. Ég hlakka til að fylgjast með hvernig hann tekst á við ritstjórastarfið. Nú starfa tveir Traustar á ritstjórn Blaðsins. Annar er ritstjóri, hinn er Hafsteinsson.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Talandi um ritstjóra og sem ritstjóra þessa vefrits, Pétur, ég hef alltaf virt þig og þín skrif, en í Kastljósinu í kvöld var upplýst að þú værir vefstjóri á sviði Reykjavíkurborgar, ráðinn af Framsóknarflokknum fyrir vel unnin störf í fortíðinni. Hefur áður verið titlaður "kafbátapenni Framsóknar" en ég ekki viljað leggja trúnað á það.  Hefur næmt fréttaskyn.  En hvað með þegar þú varst ráðinn af Flokknum? Getur nokkur lagt trúnað á þig lengur?  Ertu ekki skuldbundinn Binga of mikið nú þegar?

Þegar stórt er spurt...

Reynir Óskarsson (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 21:39

2 Smámynd: Pétur Gunnarsson

Nú bendi ég þér á færsluna hér að ofan þar sem ég útskýri það verkefni sem ég er að vinna. Ég hef aldrei falið það að ég er í Framsóknarflokknum en um það hvort ég sé hér einhver kafbátur bendi ég þér á að lesa bloggið mitt og dæma af því. Stundum hef ég tekið undir með honum, stundum lagt aðrar áherslur en hann á mál en við Björn erum vinir og oftar en ekki sammála um meginatriði. Þú verður að eiga við sjálfan þig hverju þú trúir og treystir.

Pétur Gunnarsson, 13.12.2006 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband