hux

Hvar er Ólafur F?

Er það ekki rétt munað hjá mér að Margrét Sverrisdóttir hafi lýst því yfir við blaðamenn um það leyti sem Íslandshreyfingin var stofnuð að Ólafur F. Magnússon yrði í heiðurssæti á lista Íslandshreyfingarinnar. En hann er hvergi sjáanlegur á listanum. Hvað gerðist? Og hvað varð um þjóðþekkta Sjálfstæðismanninn sem átt að vera á leið í framboð hjá Íslandshreyfingunni? Getur einhver bent mér á hvar ég finn hann á listum Íslandshreyfingarinnar?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eftir því sem mér hefur verið sagt er hann bara veikur karlinn.

thog (IP-tala skráð) 9.5.2007 kl. 20:56

2 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Mér skilst að Ólafur sé og hafi verið í veikindaleyfi um nokkurn tíma og það sé skýringin á fjarveru hans.

Þorsteinn Gunnarsson, 9.5.2007 kl. 21:00

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Við Frjálslyndir höfum saknað hans líka. Okkar ágæti borgarfulltrúi Ólafur F Magnússon hefur verið lasinn og það er skýringin á því að hann var ekki í framboði fyrir FF í kosningunum núna , en er góðu heilli að braggast og ná fyrri styrk.  Þetta get ég staðfest sem stjórnarmaður í kjördæmafélaginu í Rvk.

Sigurður Þórðarson, 9.5.2007 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband