hux

Samfélagið hafnaði þeim

Vil vekja athygli á nýrri færslu Sigurlínar Margrétar um þá allsherjarhöfnun sem heyrnarskert börn bjuggu við í íslensku samfélagi þar til fyrir örfáum árum:

Og svo voru börnin þetta ung þegar þau voru send í heimavist, fjöggra ára gömul, grunnskólaskólaskylduð samkvæmt lögum fjöggra ára gömul.  Foreldar stóðu því  berskjaldaðir gegn þessu lagaboði, gátu ekkert gert.   Þessi grunnskólaskylda varði til 18 ára aldurs.  Mjög löng grunnskólaskylda semsagt.  Græddu heyrnarlausir meira en almenningur á þessari löngu grunnskólaskyldu?  Nei, varla er hægt að segja það,  þeir stórtöpuðu á henni. 

Þetta mál um kynferðislega misnotkun heyrnarlausra barna er einhver mesti óhugnaður sem hér hefur komið upp á yfirborðið. Það er sorglegt til þess að hugsa að þessir atburðir gerðust í umhverfi sem börnin og fjölskyldur þeirra voru nánast þvinguð með lögum til þess að laga sig að og greinilegt að hagsmunir barnanna voru aldrei í fyrirrúmi við þá lagasmíð. Táknmálið bannað og þeim þar með nánast bannað að tjá sig. Íslenskt samfélag á þessum einstaklingum stóra skuld að gjalda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband