hux

Bloggrúntur

Margt bloggað um mál Jónínu og Kastljósið. Ætla að vitna hér í tvo eðalbloggara sem mér finnst koma með athyglisverð innlegg.

Guðmundur Magnússon segir:

Guði sé lof að blaðamenn og aðrir fjölmiðlamenn eru ekki dómarar við dómstóla landsins. Aftur og aftur kveða þeir upp úrskurði byggða á hæpnum rökum, fljótfærnislegum ályktunum og ónógum sönnunargögnum. [...] Nýjasta dæmið  um þetta er mál það sem kennt er við Jónínu Bjartmarz. Að sjálfsögðu gefur það tilefni til ágengrar og gagnrýninnar umfjöllunar í fjölmiðlum. En menn verða að skoða staðreyndirnar æsingalaust og án fordóma.

Pétur Tyrfingsson segir:

Ég sé því ekki betur en allur þessi málatilbúnaður sé ekki bara barnalegur fíflagangur heldur líka siðferðilega ámælisverður svo ekki sé meira sagt. [...] Jónína átti samúð mína alla í Kastljósi enda lagði hún hægri hönd á brjóst sér þegar hún reis sjálfri sér og fjölskyldu sinni til varnar. Ég óska stúlkunni til hamingju með ríkisborgararéttinn. Hún er vel að honum komin og mér nægir alveg að henni þyki vænt um drenginn hennar Jónínu. [...] Megi fleiri stúlkur fá ríkisborgararétt út á það eitt að elska íslenska drengi! Megi fleiri drengir fá þegnrétt fyrir það eitt að þykja vænt um íslenskar stúlkur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband